Myndlist sem reynir á skynfærin
Ljósanætursýning Listasafns Reykjanesbæjar að þessu sinni er sýning á verkum Guðmundar Rúnars Lúðvíkssonar og ber sýningin heitið „Ljós-nótt, vinsamlega snertið.“
Um einskonar innsetningu er að ræða þar sem unnið er með ljós og myrkur, veggverk og skúlptúra. Heiti sýningarinnar vísar hvoru tveggja til sjónar og blindu sem segja má að sé megin viðfangsefni sýningarinnar. Hún er einnig áminning um að ekki er sjálfgefið að veröldin sýni sig öll eins og hún er þótt öll skynfæri séu virk. Listamaðurinn ætlast enda til að verkin séu snert auk þess sem í uppröðun þeirra er falið orðið „snertið“ á blindraletri. Segja má að sýning Guðmundar Rúnars sé eins konar gagnrýnin úttekt á því hvernig við hin sjáandi umgöngumst veröldina og um leið tilraun til að búa til myndlist sem miðlar innihaldinu bæði til sjáandi fólks og blindra.
Sýningin verður opnuð föstudaginn 3. september kl. 18.00.