HSS sumarstörf 14-21 mars
HSS sumarstörf 14-21 mars

Mannlíf

  • Myndband: Gömul bílskúrsbönd dusta rykið af rokkinu
    Magni Freyr söngvari á æfingu með Tommy Gun. Hann er vel merktur enda er hann líka söngvari Skvaldurs sem koma líka fram á föstudag. VF//mynd Eyþór Sæm.
  • Myndband: Gömul bílskúrsbönd dusta rykið af rokkinu
    Smári gítarleikari og Óli trommari í stúdíó Lubbi peace.
Þriðjudagur 21. mars 2017 kl. 13:00

Myndband: Gömul bílskúrsbönd dusta rykið af rokkinu

Suðurnesjasveitir rifja upp gamla takta á Paddy's

Sögufrægar hljómsveitir af Suðurnesjum vakna úr löngum dvala og leiða saman hesta sína á Paddy's föstudaginn 24. mars. Um er að ræða hljómsveitir sem voru starfandi í kringum aldamótin síðustu en lífleg rokksena var þá á svæðinu. Hljómsveitirnar sem troða upp á þessu fyrsta kvöldi af vonandi nokkrum eru: Skvaldur, Ritz, Mystery Boy og Tommygun Preachers. Tónleikar hefjast kl. 22:00 og er aðgangseyrir er 1.000 kr. 

Public deli
Public deli

Árni Jóhannsson frá Sögufélagi Suðurnesja flytur erindi á tónleikunum um hljómsveitirnar út frá sagnfræðilegu sjónarmiði.

Víkurfréttir litu við á æfingu hjá Tommygun í gærkvöldi þar sem þeir voru þéttir sem aldrei fyrr. Viðtal við piltana má sjá í Sjónvarpi Víkurfrétta á fimmtudag en þar ræða þeir m.a. tónlistarsenuna í kringum aldamótin allt til dagsins í dag. (Sjá myndband efst í frétt.)