Myndasafn: Tómas heimsækir Tjarnarsel
Það varð uppi fótur og fit á leikskólanum Tjarnseli, þegar Tómas Knútsson, kafari, kom í heimsókn á þriðjudaginn. Meðferðis hafði hann lifandi sjávardýr af ýmsum toga en þau hafði hann týnt af sjávarbotni fyrr um morguninn. Þótti krökkunum þetta mikill fengur enda mátti sjá spennu og gleði í hverju andliti. Fengu krakkarnir að sjá og skoða hin ýmsu kvikindi, s.s. ýmsar krabbategundir, skelfisk, krossfiska og og ígulker. Sérstaka athygli vakti krossfiskur sem var svo risastór að annað eins hefur varla sést.
Ellert Grétarsson, ljósmyndari VF, var á staðnum og tók þessa mynd við þetta tækifæri. Fleiri myndir má sjá í myndagalleríinu hér ofar á síðunni
Ellert Grétarsson, ljósmyndari VF, var á staðnum og tók þessa mynd við þetta tækifæri. Fleiri myndir má sjá í myndagalleríinu hér ofar á síðunni