Myndasafn Reykjanesbæjar á vefinn
Opnað hefur verið fyrir aðgang að ljósmyndasafni Reykjanesbæjar á vefnum. Nú eru aðgengilegar 6895 ljósmyndir, gamlar og nýjar, frá Suðurnesjum, á slóðinni: myndasafn.rnb.is/fotoweb
Ljósmyndum hefur verið safnað í áratugi og getur fólk nú skoðað árangurinn. Mikil vinna er að skanna myndir og tengja við þær texta en vonast er til að almenningur geti orðið að liði við að bæta við og leiðrétta upplýsingar. Þetta er fyrsta skrefið en tugi þúsunda mynda er enn eftir að vinna fyrir vefinn.
Vefgáttin var opnuð á afmælisdegi Heimis Stígssonar ljósmyndara þann 17. október sl. en þá hefði Heimir orðið áttræður. Heimir var atvinnuljósmyndari og rak Ljósmyndastofu Suðurnesja í um hálfa öld og er myndasafn hans mikilvægur hluti af safninu. Í safninu eru margvíslegar tegundir af myndum, t.d. er safn Heimis að mestu negatívur og hafa þær verið skannaðar margar saman þannig að fólk geti séð alla myndatökuna.