Bygg
Bygg

Mannlíf

Myndasafn frá Samsuð
Mánudagur 16. janúar 2012 kl. 09:23

Myndasafn frá Samsuð

Það var sannarlega fjör á Samsuð, söngvakeppni grunnskóla á Suðurnesjum sem fram fór síðatliðinn föstudag. Ljósmyndari Víkurfrétta var á staðnum og smellti nokkrum myndum af unglingunum sem virtust skemmta sér vel. Sigurvegarar í Reykjanesriðlinum fara áfram á Söngvakeppni Samfés og keppa þar fyrir hönd sinnar félagsmiðstöðvar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Á söngvakeppni Samsuð voru um 200 manns og var blandaður hópur af unglingum foreldrum og skyldmennum sem stóðu við bakið á sinni félagsmiðstöð.

Heiðar Austmann sá um stuðið á balli sem haldið var eftir keppnina og voru um 180 unglingar í 8.-10.bekk af Suðurnesjunum á því balli.

Hérna eru svo nöfn keppenda í réttri röð eins og þau komu fram á keppninni.

Frá félagsmiðstöðinni Eldingu Garðinum.

Hlaupin tvö og sykurpúðinn sem Aþena Eir Jónsdóttir Elizondo, Atli Reynir Baldursson, Una Margrét Einarsdóttir skipa og flutu þau lagið Rómeó og Júlíu.

Lísbet Helga Helgadóttir og Þuríður Birna Björnsdóttir frá félagsmiðstöðinni Fjörheimum Reykjanesbæ og fluttu þau lagið: Upp á nýtt.

Ari Auðunn Jónsson frá félagsmiðstöðinni Þrumunni Grindavík og flutti hann frumsamið lag sem ber nafnið: Fyrirgefðu.

Sunneva Sól Sigurðardóttir frá félagsmiðstöðinni Fjörheimum Reykjanesbæ flutti hún lagið: Líf.

Melkorka Rós Hjartadóttir frá félagsmiðstöðinni Borunni Vogum, flutti hún lagið: Your song

Bryndís Bridget Smith frá félagsmiðstöðinni Skýjaborg Sandgerðisbæ, flutti hún lagið: Ást.

Ásdís Rán Kristjánsdóttir úr félagsmiðstöðinni Fjörheimum Reykjanesbæ flutti hún lagið: Stúlkan sem starir á hafið.

Stefán Kristinn Steinarsson frá félagsmiðstöðinni Þrumunni Grindavík, flutti hann lagið: Stingum af.

Sólborg Guðbrandsdóttir frá félagsmiðstöðinni Fjörheimum Reykjanesbæ flutti hún lagið: Who you are.

Hér má sjá myndasafn frá kvöldinu.