HSS
HSS

Mannlíf

Myglað Cheerios eftirminnilegasta jólagjöfin
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
þriðjudaginn 20. desember 2022 kl. 08:27

Myglað Cheerios eftirminnilegasta jólagjöfin

„Hljómsveitin Valdimar náði loksins að halda tíu ára afmælistónleikana eftir sí-frestanir,“ segir Þorvaldur Halldórsson, tónlistarkennari og trommuleikari Valdimar. Honum finnst notalegt að hafa jólaskreytingar og kertaljós heima í skammdeginu á aðventunni.

Hvernig var árið 2022 hjá þér og þinni fjölskyldu og hvað stendur upp úr?

Árið hefur verið annríkt, mikið unnið og yfirleitt nóg að gera. Eftirminnilegar eru kannski utanlandsferðirnar tvær sem ég fór á árinu; til Englands í sumar að fylgjast með kvennalandsliðinu í fótbolta á EM og svo tónlistarráðstefna sem ég sótti í Indianapolis í Bandaríkjunum í nóvember. Einnig var gaman að hljómsveitin Valdimar náði loksins að halda tíu ára afmælistónleikana í Hörpu í apríl, eftir tveggja ára sí-frestanir.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Ert þú mikið jólabarn?

Það vottar alveg fyrir því en allt mjög hóflegt bara. Finnst notalegt að hafa jólaskreytingar og kertaljós heima í skammdeginu á aðventunni, með góðan kaffibolla og smákökur.

Hvenær er jólatréð yfirleitt sett upp á þínu heimili?

Á æskuheimilinu var það alltaf sett upp og skreytt á Þorláksmessukvöld. Það er reyndar allur gangur á því núna á mínu heimili. Ætli það verði ekki sett aðeins fyrr upp núna fyrir hinn yngri, þriggja ára húsbóndann.

Hver eru fyrstu jólin sem þú manst eftir – áttu einhverjar skemmtilegar jólaminningar?

Man eftir því sem barn að hafa verið að suða í afa mínum fyrir ein jólin um að segja mér hvað hann ætlaði að gefa mér í jólagjöf. Hann grínaðist alltaf með það að hann ætlaði að gefa mér myglað Cheerios ... sem ég átti nú erfitt með að trúa. En svo á aðfangadagskvöld þegar pakkinn var rifinn upp þá kom í ljós stærðarinnar Cheerios pakki þar sem tússað hafði verið utan á kassann, MYGLAÐ. Sem betur fer kom nú hinn raunverulegi pakki undan trénu síðar um kvöldið.

En skemmtilegar jólahefðir?

Í æsku var það alltaf hefð hjá okkur systkinum að fara með pabba að sendast með jólapakka til fjölskyldu og vina á aðfangadag á meðan að mamma undirbjó jólamatinn. Það var alltaf mjög gaman.

Hvenær klárar þú að kaupa jólagjafirnar?

Síðasta gjöfin er yfirleitt keypt á Þorláksmessukvöld eða jafnvel á aðfangadag. Ég er alltaf seinn á ferðinni þegar kemur að gjafainnkaupum.

Hvað finnst þér vera ómissandi á jólunum?

Malt og appelsín, örlítil snjókoma og einn Jóla Kaldi fyrir svefninn.

Hver er eftirminnilegasta jólagjöfin sem þú hefur fengið?

Það hlýtur nú að vera fyrrnefndur Cheerios jólapakki – en ég hef fengið margar góðar ómyglaðar gjafir líka, svo sem bækur, flíkur og hljóðfæri.

Er eitthvað á óskalistanum fyrir jólin í ár?

Það er voða fínt að fá einhverja góða bók. Jú, heyrðu, svo vantar mig sokka.

Hvað verður í jólamatinn hjá þér á aðfangadagskvöld? Eru hefðir í mat?

Léttreyktur lambahryggur með brúnuðum kartöflum, soðnum gulrótum og svo að sjálfsögðu grænum og rauðkáli og síðan brúnu sósunni frá mömmu ef mér tekst að fá uppskriftina frá henni. Svo er það Toblerone-ísinn á eftir.

Hvað ætlar þú að gera í kringum jólahátíðina í ár?

Ég ætla að reyna að hafa það sem allra rólegast heima. Vonandi upp í sófa með nýju bókina og í nýju sokkunum sem ég fæ í jólagjöf. Aðalmálið er að hafa það huggulegt heima með fjölskyldunni.

Hljómsveitin Valdimar náði loks að halda tíu ára afmælistónleika sveitarinnar. Myndir: Spessi