Mozart við kertaljós
Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kirkjum nú rétt fyrir jólin en í ár verða líka tónleikar á Suðurnesjum og er það í fyrsta sinn. Tónleikar verða í Hvalsneskirkju 15. desember kl. 20:00.
Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart í þrjátíu ár og þykir mörgum ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu.
Hópinn skipa að þessu sinni þau Ármann Helgason, klarinettuleikari, Eydís Franzdóttir, óbóleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir og Bryndís Pálsdóttir, fiðluleikarar, Svava Bernharðsdóttir, víóluleikari, og Sigurður Halldórsson, sellóleikari.
Á dagskránni verða tvær af perlum Mozarts, Óbókvartettinn kv. 370 og hinn margrómaði Klarinettukvintett kv. 581. Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn góða, Í dag er glatt í döprum hjörtum úr Töfraflautunni eftir Mozart.
Tónleikarnir eru um klukkustundar langir. Aðgangseyrir er 2.500 krónur og frítt fyrir átján ára og yngri. Miðar við innganginn.