Bygg
Bygg

Mannlíf

Mottudagurinn haldinn í annað sinn
Fimmtudagur 15. mars 2012 kl. 12:17

Mottudagurinn haldinn í annað sinn


Föstudaginn 16. mars hvetur Krabbameinsfélagið alla landsmenn, konur og karla, til að halda upp á Mottudaginn með því að leyfa karlmennskunni að skína sem aldrei fyrr!
Á Mottudeginum látum við ímyndunaraflið ráða för og skörtum öllum mögulegum karlmennskutáknum og hvetjum landsmenn alla til að gera slíkt hið sama. Leyfum karlmennskunni að njóta sín þennan dag og hvetjum vini, vandamenn og samstarfsfélaga að taka þátt í átakinu og ekki væri verra ef vinnan tæki sig saman og efndi til skemmtilegra leikja í tengslum við daginn!

Krabbameinsfélagið hvetur t.a.m. hópa til að gera eitthvað skemmtilegt saman og láta mynda sig á ýmsan hátt og senda á [email protected] eða setja á Facebook síðu átaksins.
Hjá Krabbameinsfélaginu er hægt að fá fjölbreytt úrval af ýmsu sem fólk getur notað til að skreyta sig á Mottudaginn og þar á meðal gervimottur sem eru sex saman í pakka en á bakhlið spjaldsins eru skilaboð til karla og hvernig þeir geta hugað að heilsu sinni.

Um leið vekjum við athygli á góðu málefni og hvetjum til frekari áheita á www.mottumars.is þar sem samkeppnin harðnar frá degi til dags. Framlög þín nýtast vel til góðra verka!

Bílakjarninn
Bílakjarninn