Mottu-jóga fyrir karlmenn!
Fimmtudagskvöldið 25. mars klukkan 21:00 býður Púlsinn upp á einstakan jógatíma fyrir karlmenn á öllum aldri með fullvaxna mottu. Tilefnið er að kynna karlmönnum þessa tegund heilsuræktar og um leið að styðja við gott málefni. Aðgangseyrir kr. 1000 rennur óskiptur í fjársöfnun til styrktar átakinu Karlar og Krabbamein.
Afar, pabbar, synir, bræður, vinir og karlkyns makar eru allir velkomnir í þennan eina jógatíma. Fúlskeggjaður karlmaður mun leiðbeina körlunum og lofar þeim að þetta verði enginn kerlinga tími! Tryggðu þér pláss núna - skráning verður að fara fram í síma 848 5366 vegna takmarkaðs pláss!