Morgunverðarfundur um uppbyggingu ferðaþjónustu
- á Reykjanesi haldinn í Eldey á föstudag
Morgunverðarfundur verður haldinn í Eldey, frumkvöðlasetri, Grænásbraut 506, Ásbrú, á föstudagsmorgun kl. 8:30-10:00 og eru allir velkomnir.
Dagskrá fundarins:
Hvernig viljum við sjá Reykjanesið?
Eggert Sólberg Jónsson, verkefnastjóri Reykjanes jarðvangs
Af görðum á Reykjanesskaga: 100 gíga garður á Reykjanesi og hugmyndir um Eldfjallagarð
Ólafur Árnason, sviðsstjóri hjá Eflu verkfræðistofu og Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur
Uppbygging ferðaþjónustu í sátt við umhverfið
Klara Halldórsdóttir, sölustjóri hjá Bláa Lóninu
Efnið skapar andann- Vistvæn þjónustuhús fyrir ferðaþjónustuna
Arnar Þór Jónsson, arkítekt hjá ARKÍS
Samantekt og umræður
Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri í Grindavík og formaður stjórnar Reykjanes jarðvangs