Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Mögnuð Korda Samfónía
Laugardagur 17. júní 2023 kl. 06:08

Mögnuð Korda Samfónía

Óhefðbundnasta hljómsveit landsins hélt tónleika í Hörpu

Tónlistarfólk frá Suðurnesjum var í eldlínunni þegar Korda Samfónía hélt sína árlegu tónleika í Hörpu 22. maí. Korda Samfónía er óhefðbundnasta hljómsveit landsins og henni stýrir Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths. Margir Suðurnesjamenn voru mættir í Silfurberg til að hlýða á glænýjar tónsmíðar, auk laga frá fyrri starfsárum.

Auk Sigrún var frændi hennar, Sævar Helgi Jóhannsson aðstoðarstjórnandi. Þórarinn Örn Þórarinsson Lærlingur MetamorPhonics og fyrsta árs nemi í Skapandi Tónlistarmiðlun í Listaháskóla Íslands og Ólöf Gunnarsdóttir, meðlimur í Vox Felix sungu nokkur sóló á tónleikunum. Svo eru fleiri sem eiga rætur sínar að rekja til Suðurnesjanna í hljómsveitinni.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Því er skemmst frá að segja að tónleikarnir voru frábærir. Hin fjölmena Korda Samfónía flytur eingöngu frumsamda tónlist en sú tónlist er öll samin af meðlimum hljómsveitarinnar í sameiningu og strangar reglur eru um að enginn komi með neitt sem áður hefur verið undirbúið.  Öll tónlistin verður til þegar hljómsveitin kemur saman. Það eitt og sér getur talist óhefðbundið, en þegar litið er til þess að hljómsveitina skipa 35 manns, verður það að teljast mjög sérstakt. Að auki hittist hljómsveitin eingöngu í ellefu daga ár hvert og á fyrstu tíu dögunum verður öll þeirra tónlist til og á þeim ellefta eru haldnir tónleikar!

Sigrún segir að það sé magnað hvernig tónlist hljómsveitarinnar verður til og það á svona skömmum tíma. Hljóðfæraskipan hljómsveitarinnar er mjög fjölbreytt, líkt og bakgrunnur hljómsveitarmeðlima, en þar er að finna öfluga rhythmasveit með tveimur trommusettum, slagverksleikurum, tveimur bassaleikurum, fjórum gítarleikurum, fimm hljómborðsleikurum og tölvu, en einnig er symfónísk sveit skipuð strengjum og blásurum, auk tólf manna kór.

„Til þess að fólki vegni vel í lífinu, þarf það að upplifa sig sem gjaldgenga, virka meðlimi samfélagsins og að á það sé hlustað.  Korda einkennist af jafnrétti, vingjarnlegu, stuðningsríku og skapandi andrúmslofti, þar sem fólk vinnur saman, skapar, lærir, styrkist og vex.  Umhverfið er öruggt og fólk er hvatt til þess að taka áhættu, prófa eitthvað nýtt og víkka þægindarammann.  Mikill metnaður er lagður í listrænt gildi tónlistarinnar, sem gerir þátttakendum kleift að vera stolt yfir því sem þau áorkuðu og vita að þeirra list eigi erindi til áhorfenda.

Meðlimir Kordu Samfóníu koma frá hinum ýmsu áttum úr þjóðfélaginu.  Þar er að finna sprenglært og þaulreynt starfandi tónlistarfólk sem og nemendur úr Listaháskóla Íslands, en einnig fólk sem orðið hefur fyrir áföllum og er mislangt komið í endurhæfingaferli, sem stutt er af starfsendurhæfingastöðvum á Suðvesturhorninu,“ segir Keflvíkingurinn Sigrún en tónlistin hefur verið efst á blaði í hennar fjölskyldu en bræður hennar eru stórsöngvarinn Jóhann Smári og tónskáldið Sigurður Sævarssynir.

Verkefnið er runnið undan rifjum MetamorPhonics, samfélagsmiðuðu fyrirtæki sem Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths tónlistarkona stýrir í London. Aðstandendur og samstarfsaðilar verkefnisins eru starfsendurhæfingar víðsvegar um landið, Tónlistarborgin Reykjavík, Listaháskóli Íslands, Harpa ráðstefnu og tónleikahús.

Sigrún var viðmælandi í sjónvarpsþáttaröð Víkurfrétta sem heitir Suður með sjó árið 2022. Þar fór hún yfir sinn feril og þetta magnaða verkefni sem Korda Samfónía er.