HSS
HSS

Mannlíf

Móði og Magni fæddir í Landnámsdýragarðinum
Gunnar Júlíus Helgason með hafurkiðið Magna sem kom í heiminn stax eftir hádegið í dag. VF-mynd: Hilmar Bragi
Fimmtudagur 23. maí 2013 kl. 14:57

Móði og Magni fæddir í Landnámsdýragarðinum

Tveir kiðlingar fæddust í Landnámsdýragarðinum á Fitjum í Reykjanesbæ núna eftir hádegið. Um er að ræða tvö hafurkið sem fengið hafa nöfnin Magni og Móði. Móðir þeirra er geitin Freyja. Hún er einnig fædd í Landnámsdýragarðinum árið 2010 og er undan Aþenu.

Freyja var ekkert á því að sýna það opinberlega þegar bræðurnir komu í heiminn því þrír stórir skólahópar voru nýfarnir úr dýragarðinum þegar hafurkiðin fæddust.

Gunnar Júlíus Helgason, umsjónarmaður dýragarðsins, sagði í samtali við Víkurfréttir að nú væru átta dýrategundir til sýnis í garðinum sem er opinn alla daga frá kl. 10 til 17.





Freyja ásamt Magna og Móða.

Bílakjarninn
Bílakjarninn