Bygg
Bygg

Mannlíf

Mixed Emotion sömdu stuðningsmannalag fyrir U-21 árs liðið í fótbolta
Þriðjudagur 17. maí 2011 kl. 09:43

Mixed Emotion sömdu stuðningsmannalag fyrir U-21 árs liðið í fótbolta

- Taka þátt í samkeppni á Rás 2

Eins og flestir vita er ungmennalandslið karla á leiðinni til Danmerkur, þar sem strákarnir okkar taka þátt í úrslitakeppni Evrópukeppninnar í knattspyrnu. Sportrásin á Rás 2 sat yfir fjöldanum öllum af allskonar stuðningsmannalögum og komst að því að þau eru vel flest ekki stórkostlega frábær. Var þá ákveðið að efna til samkeppni og haft var samband við nokkra listamenn úr ýmsum áttum og þeir beðnir að taka þátt í að búa til nýtt lag fyrir strákana.

Meðal þeirra sem voru beðnir um að taka þátt var Diskótekið Mixed Emotions þar sem Smári Guðmundsson og Björgvin Ívar Baldursson ráða ríkjum. Þeir fengu kolleg sinn Davíð Örn Óskarsson úr Gramminu og félaga sinn Gunnar Skjöld sér til aðstoðar og úr varð lagið Með bláan pung. Saman sömdu þeir Smári og Björgvin lagið en Davíð og Gunnar sömdu texta. Hlýða má á lagið hér og með því að smella á heiti lagsins hér að ofan. Við hvetjum fólk endilega til að taka þátt í kosningunni og ekki væri verra að aðstoða strákana okkar í Mixed Emotions.

Mynd/pket: Smári og Björgvin eru stórtækir í tónlistarlífinu á Suðurnesjum

[email protected]

Bílakjarninn
Bílakjarninn