Minningarlundur við 88 húsið
Hugmynd er í vinnslu um að setja upp minningarlund í ungmennagarðinum við 88 húsið í Reykjanesbæ.
Hugmynd er í vinnslu um að setja upp minningarlund í ungmennagarðinum við 88 húsið í Reykjanesbæ. Hugmynd þessi varð til að frumkvæði Ungmennaráðs Reykjanesbæjar. Að sögn Stefáns Bjarkasonar, framkvæmdastjóra Íþrótta- og tómstudaráðs, verður minningarlundurinn tileinkaður ungu fólki sem hefur annað hvort fallið frá fyrir aldur fram eða horfið. Líklegt sé að miðað verði við táningaaldur unga fólksins og til 25 ára og haft verði fullt samráð við aðstandendur um birtingu nafna og mynda í lundinum. Stefán tekur þó fram að þetta sé allt á frumstigi og að hann viti ekki til þess að slíkur lundur sé til annars staðar í heiminum.