Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Mikil þátttaka á skákmóti í Heiðarskóla
Föstudagur 4. maí 2007 kl. 15:03

Mikil þátttaka á skákmóti í Heiðarskóla

Nýlega fór fram skákmót í Heiðarskóla. Fjölmargir nemendur eða 62 úr 3. - 10. bekk skráðu sig til keppni. Í lok mótsins var svo kringdur Skákmeistari Heiðarskóla sem í ár var Sigurður Vignir Guðmundsson 9. MJ.

Hann fær nafn sitt letrað á farandbikar sem geymdur verður í skólanum ásamt því að fá eignarbikar. Það var fyrirtækið Milli himins og jarðar og Kristján Pálsson, framkvæmdastjóri þess, sem gaf bikarana en sama fyrirtæki gaf skólanum í fyrra 10 skákklukkur.


Í öðru sæti varð Unnar Már Unnarsson í 7. EE.  Jöfn í 3. - 8. sæti voru Hlynur Almar Sölvason 4. HT, Grétar Þór Sigurðsson 8. IS, Jón Ágúst Guðmundsson 6. ÞG, Bjarni Reyr Guðmundsson 10. RR, Evalín Hlynsdóttir 7. EE og Kristinn Ásgeir Gylfason 10. SN.

Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt skákmót er haldið í Heiðarskóla og sýndi mikil þátttaka nemenda að ungmenni hafa áhuga á skáklistinni og er fyrirhugað að halda skákmót aftur að ári.

 

Myndir af vefsíðu Heiðarskóla, www.heidarskoli.is

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024