Mikið um að vera á bæjarhátíð í Suðurnesjabæ
Bæjarhátíð í Suðurnesjabæ verður haldin dagana 22.-28. ágúst næstkomandi. Hátíðin hefst með ljósagöngu á mánudeginum milli Garðs og Sandgerðis, þá verður gengið frá Þekkingarsetrinu í Sandgerði kl. 18:45 og frá Víðisheimilinu í Garði kl. 19:00. Göngurnar mætast við golfskálann þar sem bæjarstjórinn mun setja hátíðina. Einnig verður boðið upp á grillaðar pylsur og Skólamatur býður upp á kjötsúpu við ljúfa tóna frá Jóni Jónssyni. Gestir eru beðnir um að hafa meðferðis ljós, hvort sem það sé vasaljós, luktir eða neonljós.
Á þriðjudeginum verður boðið upp á fyrirlestur á Bókasafni Suðurnesjabæjar frá Ernu Héðinsdóttur, kennara, markþjálfa og lýðheilsufræðing, um sjósund og haldið verður í sjósundsferð í fjörunni í Sandgerði í kjölfarið. Víðir leikur fótbolta gegn Vængjum Júpíters kl. 18:00 á Nesfiskvellinum og verður frítt á leikinn og hoppukastali á staðnum. Um kvöldið verður svo pottakvöld fyrir konur í sundlauginni í Sandgerði og pottakvöld fyrir karla í sundlauginni í Garði en bæði byrja þau kl. 20:00. Miðvikudagurinn hefst með litahlaupi nemenda grunnskólanna í Suðurnesjabæ og hinir ýmsu viðburðir verða í Samkomuhúsinu í Sandgerði. Um kvöldið mun Ungmennaráð Suðurnesjabæjar standa fyrir áfengis- og vímuefnalausu lopapeysupartýi í Þorsteinsbúð, björgunarsveitarhúsinu í Garðinum. Partýið byrjar kl. 21:00 og munu tónlistarmennirnir Flóni og Magnús Kjartan halda uppi stemningunni. Fimmtudaginn 25. ágúst verður Partýbingó í Samkomuhúsinu í Sandgerði en þau Eva Ruza og Sigurður Gunnarsson verða bingóstjórar. Hoppland býður fólki að stinga sér til sjós við Sandgerðishöfn og verða listasýningar, tónleikar frá hljómsveitinni LÓN og ball með Suðlabandinu í Samkomuhúsinu í Sandgerði í boði á föstudeginum. Á laugardeginum verður dorgveiðikeppni við Sandgerðishöfn og bjórhlaup frá Víðishúsinu að Litla Brugghúsinu, sem og fótboltaleikur á Blue vellinum en Reynir mun spila gegn Magna. Þá verður einnig fjölskylduskemmtun þar sem leikhópurinn Lotta, Sirkus Íslands og Friðrik Dór munu meðal annars stíga á svið. Dagskrá laugardagsins endar svo á kvöldskemmtun við Sandgerðisskóla þar sem frábærir listamenn munu stíga á svið og í kjölfarið verður flugeldasýning. Síðasta daginn verður boðið upp á bílabíó á Víðisplani og Unnur Sara Eldjárn mun flytja franskar 60’s perlur í Þekkingarsetrinu. Ljóst er að dagskráin er þétt og eitthvað í boði fyrir alla.