Mikið líf á Sólseturshátíð í Garði - myndir
Það er sannkallað líf og fjör á Sólseturshátíð í Garðinum þessa dagana. Fallegt sólsetur blasti við Garðmönnum og gestum á miðnætti í gær.
Mjög fjölbreytt og flott dagskrá nær hámarki í dag, laugardag fram eftir degi og kvöldi.
Nú kl. 14 hófst hátíðardagskrá þar sem m.a. Eyþór Ingi Eurovision-fari mun stíga á stokk og í kvöld verður einnig margt í boði, m.a. mun Helgi Björns skemmta.
Þó sólin hafi ekki látið sjá sig nema að litlu leyti er veður milt og gott og allir ættu að geta átt góðar stundir í Garðinum þessa helgina. Meðfylgjandi myndir voru teknar síðustu daga á hátíðinni.
Það var hlaupið á Sólseturshátíð í morgun.
Hér má m.a. sjá Valdimar trommara með fleira fólki í góðum gír.
Rauða liðið sigraði í hverfamótinu í knattspyrnu.
Íþróttaálfurinn og Solla stirða mættu í Garðinn við fögnuð yngri kynslóðarinnar.
Víðismenn grilluðu ofan í fjöldann.
Samsýning nokkurra listamanna er á hátíðinni.
Hinn 13 ára Víglundur er að sýna verk sín í fyrst sinn, sannarlega efnilegur kappi á ferð. Bítlarnir og fleiri frægir einstaklingar eru hluti af viðfangsefni Víglundar.
-
Boðið var upp á tónlistaratriðið við opnun myndlistarsýningarinnar.