Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Miðasala gengur vel á styrktartónleika SKB í Háskólabíó
Þriðjudagur 28. desember 2010 kl. 16:37

Miðasala gengur vel á styrktartónleika SKB í Háskólabíó

Það er orðinn árviss viðburður, að framvarðarsveit íslenskrar popptónlistar komi saman við áramót í Háskólabíói við Hagatorg og stilli saman strengi til styrktar SKB. Árið í ár er engin undantekning og hefur dagskráin sjaldan eða aldrei verið eins glæsileg. Á undanförnum árum hafa yfir 34 milljónir króna safnast á þessum tónleikum, og nú er markmiðið að sú upphæð hækki í 36.7 milljónir króna.

Þeir sem koma fram á fimmtudagskvöldið eru SÁLIN HANS JÓNS MÍNS , BUBBI MORTHENS & BAND, DIKTA, INGÓ, SVEPPI, STÓRSVEITIN BUFF, HVANNADALSBRÆÐUR, FRIÐRIK DÓR, THE CHARLIES, POLLAPÖNK, SKÍTAMÓRALL, JÓNSI OG FLEIRI

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ennþá er hægt að nálgast miða á http://midi.is/tonleikar/1/6280

Að gefnu tilefni, er rétt að láta það fylgja, að á tónleikunum í gegnum tíðina hefur komið fram rjómi þekktustu tónlistarmanna landsins á hverjum tíma og hafa allir þeir sem komið hafa að tónleikunum gefið vinnu sína til fulls. Um leið hafa allir tæknimenn og aðrir starfsmenn tónleikanna gefið vinnu sína. Öll fyrirtæki, sem að verkefninu hafa komið, hafa einnig gefið alla sína vinnu. Að sjálfsögðu er engin breyting þar á.

Árlega greinast að meðaltali 10 - 12 börn og unglingar 18 ára og yngri með krabbamein á Íslandi. Markmðið með stofnun Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna var m.a. að styðja við bakið á þeim og aðstandendum þeirra bæði fjárhagslega og félagslega. Í upphafi hafði félagið takmarkað bolmagn til framkvæmda en úr rættist með stórri landssöfnun 1993, þá var m.a. stofnaður neyðarsjóður sem meðlimir SKB geta sótt um fjárstyrk úr. Fimm manna nefnd metur umsóknir og úthlutar styrkjum en tengist SKB ekki að neinu öðru leyti.

Neyðarsjóðurinn er í raun tiltekin fjárupphæð sem stjórn SKB samþykkir fyrir hvert starfsár. Sérstök úthlutunarnefnd fer síðan með umboð til fjárveitinga úr styrktarsjóði SKB en skipulagsskrá fyrir hann er staðfest af dómsmálaráðuneytinu. Einnig ákveður stjórn SKB þak á hverja úthlutun. Hver félagsmaður í SKB má þó sækja um eins oft og hann telur þörf á. Þess skal getið að skila þarf inn ítarlegum upplýsingum með hverri umsókn í neyðarsjóð svo úthlutunarnefnd fái tekið vel upplýstar og ígrundaðar ákvarðanir. Auk þessa aðstoðar þjónustufulltrúi SKB hjá viðskiptabanka félagsins úthlutunarnefnd við skoðun og mat á umsóknum.