Mexíkósk stemmning í miðbæ Keflavíkur
Mamma mía er mexíkanskur staður sem stendur við Hafnargötuna í miðbæ Reykjanesbæjar. Elí Másson og Gunnar Ómarsson, framreiðslumenn, eru eigendur staðarins, sem er starfræktur í samstarfi við mexíkanska staðinn Creol og mex í Reykjavík. Þann stað á móðir Elís, Fríða Einarsdóttir sem opnaði fyrsta mexíkanska staðinn á Íslandi fyrir 12 árum. Fríða lærði mexíkanska matargerð á Spáni og hefur þróað réttina frá því heim kom. Mamma mía tekur 64 í sæti, en einnig er hægt að taka 25-30 manna hópa, sem geta setið saman við langborð í salnum. Matseðillinn spannar nánast alla flóru matar, allt frá séríslenskum réttum s.s. gröfnu íslensku lambi, saltfiski o.fl. upp í gott úrval mexíkanskra og ítalskra rétta, en einnig er sérstakur matseðill fyrir börn. Börnunum er svo boðið upp á ís eftir matinn. Allar helgar er boðið upp á mexíkanskt hlaðborð frá föstudegi til sunnudags, en matur er afgreiddur alla daga frá kl 17.00. Virka daga lokar eldhúsið klukkan 22.00, en um helgar er það opið til klukkan 23.00. Salurinn er þó alltaf opinn eins lengi og fólk vill vera.Umhverfið á staðnum er suður-amerískt og í einu horninu er gott barnahorn með litum, kubbum o.fl.