Bygg
Bygg

Mannlíf

Metnaðarfull stuttmynd tekin upp á Suðurnesjum
Frá tökum myndarinnar.
Mánudagur 13. ágúst 2012 kl. 10:55

Metnaðarfull stuttmynd tekin upp á Suðurnesjum

ÁRTÚN er þroskasaga þriggja tólf ára stráka sem búa í litlum smábæ á Reykjanesi.



Tökum er nýlokið á Ártún, leikinni mynd sem fjallar um sjálfsímynd krakka og áhugann á hinu kyninu.  Leikstjóri myndarinnar er Guðmundur Arnar Guðmundsson, en hann hefur búið síðustu ár í Danmörku og hlotið nokkur alþjóðleg verðlaun fyrir stuttmyndir sínar. Meðal verka Guðmundar er danska stuttmyndin  Malou sem skartar dönsku stjörnunni Søren Malling sem íslendingar þekkja úr þáttaröðunum Glæpurinn (Forbrydelsen) og Höllin (Borgen).



Bílakjarninn
Bílakjarninn

ÁRTÚN er þroskasaga þriggja tólf ára stráka sem búa í litlum smábæ á Reykjanesi. Strákana langar að eignast kærustur en stelpurnar í bænum þeirra hafa ekki áhuga. Strákarnir ákveða því að fara yfir til Reykjavíkur og láta reyna á lukku sína þar.

 Myndin var tekin upp á Reykjanesinu og í Reykjavík en tökuliði þykir vert að taka fram þá einstöku gestrisni er tökulið og leikarar nutu í Garði, Höfnum og að lokum Hlíðahverfi Reykjavíkur.

Tökur gengu vonum framar og lofa góðu að mati aðstandenda.  

Aðalhlutverk Ártúns eru í höndum 11-14 ára krakka/unglinga sem eiga mikið hrós skilið fyrir frammistöðu sína í myndinni. Til að finna þetta góða teymi leikara voru haldnar opnar prufur þar sem hátt í 300 frambærilegir krakkar létu sjá sig. Að sögn framleiðenda myndarinnar var virkilega ánægjulegt var að sjá hversu mikið er til af hæfileikaríkum krökkum á Íslandi.

ÁRTÚN er íslensk/dönsk framleiðsla. Anton Máni Svansson er aðalframleiðandi myndarinnar en  meðframleiðendur hennar eru Sagafilm, Darin Mailand-Mercado og Rúnar Rúnarsson. Aðalstyrktaraðilar verksins eru Kvikmyndamiðstöð Íslands, Evrópu Unga Fólksins og Danski Kvikmyndasjóðurinn. 
Eftirvinnsla myndarinnar er nú að hefjast og er frumsýning áætluð í Október.