Bygg
Bygg

Mannlíf

Merkisár í sögu Garðs
Fimmtudagur 1. janúar 2009 kl. 13:25

Merkisár í sögu Garðs



Oddný Harðardóttir, bæjarstjóri í Garði:

Árið 2008 er búið að vera merkisár í sögu Garðs.  Sveitarfélagið varð 100 ára og Garðbúar hafa haldið upp á afmælið í hverjum mánuði ársins.  Margt er eftirminnilegt en 100 ára afmælisdagurinn 15. júní er þó eftirminnilegastur.  Þá var m.a. útilistaverkið Skynjun eftir Ragnhildi Stefánsdóttur afhjúpað við innkomu bæjarins og lágmyndir af heiðursborgurum Garðs eftir sama listamann afhjúpaðar á bæjarskrifstofunni.  Á hátíðarbæjarstjórnarfundi var Menntasjóður Sigurðar B. Sívertsen stofnaður en Sigurður var prestur að Útskálum á 19. öldinni og stofnaði m.a. barnaskólann árið 1872.   Sigurður hefur sennilega átt stærstan þátt í að móta menningarlíf og lífsviðhorf Garðmanna á sínum tíma og áhrifa hans gætir enn.  Tónverkið Annáll eftir Áka Ásgeirsson varfrumflutt þennan dag og Bjarni Thor Kristinsson óperusöngvari gladdi okkur með fögrum söng.  Listsýningar voru víða um bæinn og góðir gestir komu og fögnuðu með okkur. Þetta var góður dagur fyrir okkur Garðbúa.  

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Það væri of langt mál að telja upp alla viðburði afmæisársins en ofarlega í huga er þó kvikmyndinn Undir ljósi Garðskagavita eftir Guðmund Magnússon sem var frumsýnd sl. mánudag í Samkomuhúsinu.  Þar skilar kvikmyndargerðarmaðurinn ungi ágætu verki og er myndin merk heimild um Garðinn og Leiruna á síðustu öld.  Í myndinni erum við minnt á að Garðmenn hafa fyrr á tímum gengið í gegnum erfiðleika og unnið sig út úr þeim.  Hér býr dugmikið fólk og við munum einnig vinna okkur í gegnum núverandi efnahagsþrengingar.

Hjá mér persónulega er hjólaferð um Norður Ítalíu minnisstæðust en þar hjóluðum við hjónin í viku ásamt kærum vinum okkar frá námsárunum.  Allar stundir ársins með Tómasi Inga barnabarninu mínu eru eftirminnilegar gleðistundir.