HSS
HSS

Mannlíf

Mánudagur 14. janúar 2002 kl. 16:32

Merkar minjar á Másbúðarhólmi skoðaðar

Sigurbjörn Stefánsson frá Nesjum leiddi nýlega hóp áhugamanna úr Reykjavík (FERLIR) um minjar og sögu Másbúðarhólma. Það var vel við hæfi á þessu nýbyrjaða Menningarminjavarðveisluári Sameinuðu þjóðanna að skoða þau þjóðlegu verðmæti, sem þar er að finna, eins og reyndar víðast hvar á Rosmhvalanesi.Í Hólmanum eru, auk meðfylgjandi áletrunar á klöpp frá árinu
1696, tóftir gömlu Másbúða svo og garðar og hlaðin bátaskjól. Úr Másbúðarhólma var búið langt fram á 19. öld og þaðan var gert út fram á 20. öldina og enn má sjá, ef vel er að gáð í Kóngsvörinni, minjar frá kóngsversluninni.
Á meðfylgjandi mynd má sjá steinbrú er liggur út í Hólamann, en hún fer reyndar á kaf í flóði. Mikið landbrot hefur átt sér stað á þessu svæði og verður ekki langt að bíða uns sjórinn nær Másbúðavörðunni, þarna fremst á kampinum. Gömul heimild er um áletrunina í ritsafni Skúla fógeta Magnússonar.
Í annarri heimild er getið um ártalsstein skammt frá, eða í hlaðinu á Fuglavík. Á stein þar er klappað áratalið 1580. Hann er því elsti ártalssteinn, sem enn er vitað um á Reykjanesi og þótt víðar væri leitað.
Jónína Bergmann, sem er fædd og uppalinn í Fuglavík, fann steininn fyrir skömmu eftir ábendingu Sigurðar Eiríkssonar í Norðurkoti.
Rosmhvalanesið hefur margt forvitnilegt að geyma. Margt eldra fólk á Nesinu býr yfir mikilli og áhugaverðri vitneskju um margt, sem þar er að finna.
Nýta mætti vitneskju þess betur en gert hefur verið, ekki síst með það fyrir augum að tengja söguna minjum, sem enn hefur ekki verið spillt. Í seinni tíð hefur því miður borið á ákveðnu virðingarleysi fyrir því sem gamalt er.
Kominn er tími til að breyta því - þjóðfélaginu til heilla.
Bílakjarninn
Bílakjarninn