Menntastig styrkist í Reykjanesbæ
Fjöldi íbúa Reykjanesbæjar sem lokið hafa háskólanámi vex hratt. 64,4% íbúa Reykjanesbæjar hafa lokið námi umfram grunnskólapróf og vaxandi fjöldi hefur lokið háskólanámi. Nú hafa 41,8% íbúa undir 18-39 ára aldri hafa lokið háskólanámi. Í febrúar s.l. var fjöldinn 37,6%. Þetta er niðurstaða könnunar MMR, sem unnin var fyrir Atvinnu- og hafnasvið Reykjanesbæjar nú í október.
Í febrúar s.l. höfðu 40,3% íbúa 18-67 ára eingöngu grunnskólanám að baki en nú er talan komin niður í 35,6%. Fjöldi íbúa með starfsnám og bóklegt og verklegt framhaldsnám hefur aukist. „Þetta er ánægjuleg þróun samhliða góðum árangri grunnskólanna okkar“ segir Árni Sigfússon bæjarstjóri. „Samfélagið er að ná miklum árangri og sýnir að þegar allir leggjast á eitt má áorka miklu. Auðvitað eru einhver skekkjumörk í svona samanburði en þó greinilegt að menntun þeirra sem eru með nám umfram grunnskóla er að styrkjast. Bæði eru nýir íbúar að koma inn, en hér er talsverð fjölgun íbúa, og þá hafa Miðstöð símenntunar, Fjölbrautaskólinn og ekki síst Keilir átt drjúgan þátt í þessum viðsnúningi sem er að verða. Hér höfum við á orði að við séum að mennta okkur út úr kreppunni“, segir Árni.