Bygg
Bygg

Mannlíf

Menningarvikan - Maggi Eiríks og KK, Þórhallur miðill og Bæjarsýning
Fimmtudagur 7. apríl 2011 kl. 10:25

Menningarvikan - Maggi Eiríks og KK, Þórhallur miðill og Bæjarsýning

Fjölbreytt og flott dagskrá er í dag, fimmtudag, í Menningarvikunni í Grindavík. Má þar nefna Magnús Eiríksson og KK á Bryggjunni, Þórhall Guðmundsson miðil í Kvennó og seinni  bæjarsýninguna á árshátíðarleikriti grunnskólans, Okkar eigin Grindavík.

Kl. 07:00 - Pottaspjall. Páll Jóhann Pálsson bæjarfulltrúi mætir í heitu pottana í Sundlaug Grindavíkur og spjallar við gesti um málefni
líðandi stundar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Kl. 13:00 - 17:00 Listastofa Helgu.
Opin vinnustofa að Vörðusundi 1.

Kl. 20:00 - Leikrit grunnskólans Okkar eigin Grindavík - fjallar um unglingalíf á gamansaman hátt. (bæjarsýning). Leikstjóri Marta Eiríksdóttir.

Kl. 20:00 - Kvennó: Skyggnilýsingarfundur.
Þórhallur Guðmundsson miðill verður með skyggnilýsingarfund.
Aðgangseyrir: 1.500 kr. Fundurinn er liður í fjáröflun 8. flokks drengja í körfuknattleik sem eru á leið til
Boston í æfingabúðir.

Kl. 21:00 - Bryggjan: Magnús Eiríksson og KK. Tveir af fremstu söngvaskáldum á Íslandi troða upp á Bryggjunni. Það er búið að bókfæra þá báða í ævisögu. Sjálfur Einar Kárason skrifaði um KK og Tómas Hermannsson skrifaði um Magga Eiríks. Þeir verða á Bryggjunni með tveggja tíma konsert þetta kvöld.