Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Menningar- og sögutengd gönguhátíð í Grindavík um verslunarmannahelgina
Þriðjudagur 15. júlí 2008 kl. 12:26

Menningar- og sögutengd gönguhátíð í Grindavík um verslunarmannahelgina

Föstudagur 1. ágúst:
Mæting kl. 20 við Saltfisksetrið, Hafnargötu 12a. Gengið verður með leiðsögn um Járngerðarstaðahverfi, gamla bæjarhlutann í Grindavík í 1-2 tíma. Fróðleikur í Flagghúsinu í lok göngu. Gangan er í boði Grindavíkurbæjar og Saltfisksetursins.


Laugardagur 2. ágúst:
Mæting kl. 11 við Ísólfsskála, sem er í um 6 km austur af Grindavík, á Krýsuvíkurleið. Gengið verður með leiðsögn um Selatanga þar sem sjá má minjar um verbúðir og sjósókn fyrri tíða. Síðan verður gengið eftir rekastíg um Katlahraunið sem er líkt og „Dimmuborgir“ með sínum kyngimögnuðu hraunmyndunum. Gangan endar við Ísólfsskála og tekur um 2-3 tíma. Gott er að vera í góðum skóm. Aðstaða er til að grilla á Ísólfsskála í lok göngu. Gangan er í boði Grindavíkurbæjar og Saltfisksetursins.


Sunnudagur 3. ágúst:
Mæting kl. 11 við Saltfisksetrið. Ekið með rútu að Móklettum á Krýsuvíkurleið. Gengið verður með leiðsögn um gömlu þjóðleiðirnar, Sandakraveg og Skógfellaveg og endað við Saltfisksetrið í Grindavík. Svæðið býður upp á stórbrotna náttúru, jarðfræði og sögu. Gangan tekur um 5-6 tíma. Gott er að hafa með sér nesti og vera í góðum skóm. Í lok göngu verður boðið upp á heilgrillað lamb á teini í Saltfisksetrinu. Verð kr. 1.200. Gangan er í boði Ferðamálasamtaka Suðurnesja.


Mánudagur 4. ágúst:
Mæting kl. 11 við bílastæði Bláa lónsins – Gengið með leiðsögn um hluta af gömlum þjóðleiðum, Skipsstíg og Árnastíg að Húsatóftum. Gangan tekur um 3-4 tíma. Svæðið býður upp á stórbrotna náttúru, jarðfræði og sögu. Gott er að hafa með sér nesti og vera í góðum skóm. Rútuferð til baka. Gangan er í boði Bláa Lónsins sem auk þess býður upp á aðgangseyri, 2 fyrir 1 í lónið í lok göngu.

Leiðsögumenn í ferðum: Ómar Smári Ármannsson og Sigrún Jónsd. Franklín

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ekkert þátttökugjald er í gönguferðir en rútugjald er kr. 500, frítt fyrir börn 12 ára og yngri. Allir á eigin ábyrgð í ferðum.

Gönguhátíðin er liður í viðburða- og menningardagskrá Grindavíkur 2008.

Styrktar- og umsjónaraðilar: Grindavíkurbær, Saltfisksetrið, Bláa Lónið, Ferðamálasamtök Suðurnesja, Eldfjallaferðir, FERLIR og sjf menningarmiðlun.

Upplýsingar um tjaldsvæði Grindavíkur, gistingu, veitingar og aðra þjónustu eru á www.grindavik.is eða í Saltfisksetrinu s. 4201190.



Nánari upplýsingar um ferðir eru á www.sjfmenningarmidlun.is eða í gsm 6918828 Sigrún Jónsd. Franklín, [email protected]