Menningar- og sögutengd gönguferð frá Kálfatjarnarkirkju
Mæting er við Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd, sunnudaginn 9. ágúst kl 11. Gengið verður með leiðsögn um Kálfatjarnarsvæðið og hluta af gamalli þjóðleið, Almenningsvegi, er lá áleiðis í Voga..Til baka verður gengið um heiðina. Svæðið býr yfir ótal mörgum sögum og minjum. Þátttökugjald er kr. 1000. Frítt fyrir börn undir 12 ára aldri. Vegalengdin er um 6 km og tekur 3 – 4 tíma með stoppum. Gott er að vera í góðum gönguskóm og með nesti. Gengið í hrauni og grasi. Ferðin kemur í lok Fjölskylduhátíðar í Vogum sjá nánar á www.vogar.is
Gangan er níunda ferðin af tólf menningar- og sögutengdum gönguferðum um hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum sem farnar verða með leiðsögn sumarið ´09. Boðið er upp á þátttökuseðil þar sem göngufólk safnar stimplum fyrir hverja ferð. Þegar búið verður að fara 4 - 12 gönguleiðir verður dregið úr seðlum og einhverjir þrír heppnir fá veglega vinninga.
Dregið verður í síðustu göngu. Þátttakendur eru beðnir um að muna efti að taka þátttökuseðla með í ferðir. Allir eru velkomnir.
Nánari upplýsingar um ferðir
Sigrún Jónsd. Franklín
www.sjfmenningarmidlun.is