Menningar- og sögutengd ganga og fræðsla um Garð
Menningar- og sögutengd ganga og fræðsla um Garð (um 1. - 2. tíma ferð).
Gangan hefst við Útskálakirkju kl. 11:00 og er liður í dagskrá Sólseturshátíðarinnar í Garði laugardaginn 19. ágúst.
Markmiðið er að kynna á mannlífið í Garði frá upphafi, sýnilegar minjar er lýst geta búsetu, atvinnu og sérstöðu svæðisins með sérstakri áherslu á einstaka staði, s.s. Útskálakirkju, Skagagarðinn mikla, fornmannagröf, höfnina og varir.
Rakin verður saga Útskálakirkju í megindráttum sem og umhverfi hennar. Gengið verður að Skagagarðinum (talinn vera allt að 1000 ára) sem enn er greinanlegur. Haldið verður að fornmannagröf og saga hennar rifjuð upp. Gengið verður innan Síkjanna niður að bryggju og rifuð upp saga sjósóknar og þróun byggðar. Til baka verður gengið með ströndinni, skoðaðar varir og sagt frá sjósköðum fyrri tíma.
Leiðsögumenn Reykjaness sjá um fræðsluna og leiða gönguna. Gangan er í boði Sveitarfélagsins Garðs.
Mynd: Áletrun á fornmannagröf í Garði