Menning og stuð á fimmtudagskvöldi Ljósanætur - myndir
Ljósnótt fór vel af stað með opnun listsýninga og skemmtilegri stemmningu um allan bæ á fimmtudagskvöldi, öðrum degi Ljósanætur 2017. Heimamenn og nærsveitamenn voru í lykilhlutverki og gestir notuðu tækifærið til að upplifa og nýta sér góð tilboð sem verslanir eru með og sýningar voru opnaðar víðsvegar um bæinn. Hátíðin fór því vel af stað og góð stemmning var í bænum.
Að venju er það heimafólk sem sýnir í sölum Duus Safnahúsa. Í gær voru opnaðar fjórar nýjar sýningar í jafnmörgum sölum og buðu sýnendur upp á ljóðaupplestur og tónlist. Í listasal er einkasýning Helga Hjaltalíns Eyjólfssonar, Horfur. Miðaldra karlmaður staðsettur í Höfnum reynir að útskýra fyrir sér ástand heimsins og hverjar horfurnar séu.
Í Gryfjunni sýnir Elísabet Ásberg verk unnin úr silfri. Verkin eru öll með skírskotun í undirdjúpin og hæfa því rými Gryfjunnar vel. Sýninguna nefnir hún Glyttur.
Í Bíósalnum hafa myndlistarkonan Sossa og ljóðskáldið Anton Helgi Jónsson sameinað krafta sína í hinni erótísku sýningu Blossa. Mjög áhugavert samspil hér á ferð, en Sossa og Anton hafa áður unnið skemmtilega saman með mynd- og ljóðlist. Anton Helgi las upp ljóð við opnunina.
Í nýjasta rými Duus Safnahúsa, Stofunni, sýnir tónlistarkonan Fríða Dís Guðmundsdóttir 57 olíumálverk sem hafa að fyrirmynd 57 þungunarpróf. Með sýningunni vil
l Fríða Dís vekja athygli á því að barnalán sé ekki sjálfgefið og hefur sýningin skírskotun í hennar eigin reynslu. Eftir margar tilraunir birtust loksins II strik á þungunarprófinu. Systkinin Fríða Dís og Smári Guðmundsbörn úr Klassart fluttu tónlist við opnunina.
Hjólbörutónleikar voru í Keflavíkurkirkju og þar fóru þeir á kostum þremenningarnir, Kjartan Már Kjartansson, Elmar Þór Hauksson og Arnór Vilbergsson. Fullt var í kirkjunni og stemmning frábær.
Gleðin heldur áfram í dag, föstudag, með opinni söngstund í Ráðhúsi, bryggjuballi og kjötsúpuveislu, heimatónleikum og harmonikkuballi, svo fátt sé nefnt.
Dagskrána í heild er að finna á vefnum http://www.ljosanott.is
Anton las úr ljóðum og Sossa sýndi myndir. Frá opnun sýningarinnar.
Elísabet Ásberg með foreldrum sínum, Guðnýju og Árna Samúelssyni í sýningarsalnum, Gryfjunni í Duus.
Í listasal er einkasýning Helga Hjaltalíns Eyjólfssonar, Horfur.