Bygg
Bygg

Mannlíf

Menning frá morgni til kvölds í heila viku
Fimmtudagur 11. mars 2010 kl. 16:45

Menning frá morgni til kvölds í heila viku

- Menningarvika Grindavíkur verður sett á laugardaginn

Menningarvika Grindavíkur verður haldin 13. til 20. mars nk. undir yfirskriftinni Menning er mannsins gaman. Þetta er í annað sinn sem menningarvikan er haldin og er dagskráin fjölbreytt og skemmtileg en um 40 metnaðarfull atriði eru á dagskrá. Tónleikar, skemmtanir, frásagnir, sýningar og uppákomur verða alla dagana í Saltfisksetrinu, Bryggjunni, Flagghúsinu, Mömmu míu, Salthúsinu, Aðal-braut, Veitingastofunni Vör, Grindavíkurkirkju, leikskólunum, grunnskólunum og listastofum. Nokkrir af fremstu listamönnum þjóðarinnar koma í heimsókn en kjarninn í menningarvikunni er framlag heimamanna.


Setning menningarvikunnar verður í Saltfisksetrinu laugardaginn 13. mars og verður sjálf forsetafrúin, Dorrit Moussaieff, viðstödd og ætlar hún að taka í prjóna þegar hafist verður handa við að prjóna lengsta trefil í heimi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Að sögn Kristins Reimarssonar, frístunda- og menningarfulltrúa í Grindavík, tókst menningarhátíðin í fyrra mjög vel og góð þátttaka var á allflesta viðburði. Segja má að hver Grindvíkingur hafi upplifað eitthvað af menningarvikunni í fyrra því um 3.000 manns mættu á þá viðburði sem voru á dagskrá. Hugmyndin á bak við þessa menningarviku er að virkja heimamenn sem mest til þátttöku og fá þá fjölmörgu sem eru að fást við alls konar list og listsköpun að stíga fram á sjónarsviðið.


En hvernig gengur að virkja heimafólkið?

„Það gengur bara nokkuð vel. Við boðuðum til fundar í janúar og óskuðum þar eftir hugmyndum að dagskráratriðum og það hefur skilað sér í þeirri fjölbreyttu dagskrá sem Grindvíkingum og gestum þeirra verður boðið upp á þessa 8 daga. Við höfum þó í ár fleiri „aðkeypt“ atriði en flest eru þau þó með listamönnum sem tengjast Grindavík með einum eða öðrum hætti,“ segir Kristinn og bendir á að óhætt sé að segja að menningarlífið sé fjölbreytt. Menningarvikan í fyrra og þessi sem nú er að hefjast sýna það svo sannarlega.


„Dagskráin er fjölbreytt í ár. Heimsmetstilraunin sem við ætlum að setja af stað með því að prjóna lengsta trefilinn er spennandi verkefni. Einnig er vert að vekja athygli á saltfiskuppskriftarkeppninni sem við vorum með í fyrra og endurtökum í ár. Skáldaspjall þeirra Kristínar Marju og Kristínar Helgu á bókasafninu er áhugavert sem og allir þeir tónlistarviðburðir sem eru í boði núna. Óp-hópurinn, Delize Italiane og Kaldalónstónleikar í Saltfisksetrinu. Gunnar Þórðarson, Eyþór Gunnarsson og Ellen Kristjánsdóttir á Bryggjunni. Hópreið Lemúranna í Salthúsinu ásamt ungum grindvískum tónlistarmönnum og svo tónleikar í Grindavíkurkirkju. Að endingu verð ég svo að minnast á ljósmyndasýningu Ólafs Rúnars í Saltfisksetrinu. Það er sýning sem Grindvíkingar geta ekki látið fram hjá sér fara,“ segir Kristinn.


Athygli er vakin á því að ókeypis aðgangur er að flestum viðburðum menningarvikunnar. Einnig er gaman að geta þess að upphaf menningarvikunnar tengist núna safnahelgi á Suðurnesjum en ókeypis er í öll söfn á Suðurnesjum þessa helgi og fjölbreytt dagskrá í boði í öllum sveitarfélögum á Suðurnesjum. Vonandi skilar þessi helgi mikilli aðsókn til Grindavíkur því að margt spennandi er í boði. Hægt er að nálgast dagskrána á www.grindavik.is