Meðfæddir ónæmisgallar, hættumerki og meðferð
Samnorræn ráðstefna um helgina.
Samnorræn ráðstefna verður haldin í Kirkjulundi um næstu helgi, á vegum félagsins Lindar. Ráðstefnan verður bæði fræðileg og félagsleg og er hugsuð sem tækifæri fyrir sjúklinga, aðstandendur, lækna og hjúkrunarfólk til að hlusta á erindi sérfræðinga og hitta fólk í sömu stöðu; deila reynslu og koma á tengslum. Sérfræðingar frá öllum Norðurlöndunum munu flytja erindi.
Lind - Félag um meðfædda ónæmisgalla var stofnað 11. maí 2002 af einstaklingum með meðfædda ónæmisgalla, aðstandendum þeirra og áhugafólki. Markmið félagsins er að stuðla að öflugum forvörnum, greiningu og meðferð meðfæddra ónæmisgalla og annast fræðslu á meðfæddum ónæmisgöllum og málefnum þeim tengdum.
Meðfæddir óæmisgallar valda endurteknum sýkingum sem reynast oft erfiðir í meðhöndlun. Þeir greinast hjá 1:1500 einstaklingum. Ef vart er við tvö eða fleiri neðangreindra hættumerkja er mælt með að ræða við lækni um hugsanlegan ónæmisgalla. Mikilvægt er fá greiningu eins fljótt og unnt er og hefja í kjölfarið viðeigandi meðferð til að minnka líkurnar á varanlegum líffæraskemmdum.
Meðal hættumerkja hjá börnum og fullorðnum:
• Eyrnabólga fjórum sinnum eða oftar á undanförnu ári
• Alvarleg kinnholubólga tvisvar eða oftar undanfarið ár
• Meðferð sýklalyfja í 2 mánuði eða lengur án teljandi árangurs
• Lungnabólga tvisvar eða oftar undanfarið ár
• Hægur líkamsþroski eða léleg þyngdaraukning hjá ungbörnum
• Endurtekin graftarkýli á húð eða innri líffærum
• Viðvarandi þruska í munnholi eða sveppasýking á húð
• Nauðsyn á sýklalyfjagjöf í æð til meðhöndlunar á sýkingum
• Tvær eða fleiri alvarlegar sýkingar s.s. blóðeitrun
• Fjölskyldusaga um meðfædda ónæmisgalla