HSS
HSS

Mannlíf

Með þolinmæði og samstöðu getum við allt
Sigurður Óli Hilmarsson.
Þriðjudagur 10. júní 2014 kl. 09:25

Með þolinmæði og samstöðu getum við allt

Sameinuðust í stærsta afþreyingarfyrirtæki á Reykjanesi.

Sigurður Óli Hilmarsson er formaður samtakanna Grindavík Experience (Upplifðu Grindavík) sem stofnuð voru af fjórtán ferðaþjónustuaðilum í Grindavík árið 2008. Aðdragandann að stofnun þeirra má rekja til þátttöku margra þessara aðila að námskeiðinu Hagvöxtur á Heimaslóð fyrir Reykjanes (HH-verkefni) á vegum Útflutningsráðs í byrjun sama árs og þeirra hugmynda sem þar kviknuðu.

Vilja efla aðgengi og greiða götur                    
„Við reyndum að stofna samtök fyrir allt Reykjanes en það gekk ekki upp. Við einbeittum okkur því að Grindavík, enda hefur það svæði verið aðal drifkraftur í ferðamannaiðnaði á Reykjanesi. Allir eru þó velkomnir í samtökin“ segir Sigurður og að samtökin hafi verið töluvert virk í að þrýsta á bæjaryfirvöld og stjórnsýsluna til að koma að aðgengi fyrir alla og greiða götur allra hópa þar sem við á, með leyfismál og slíkt. „Þar hefur Grindavíkurbær stutt okkur vel í gegnum tíðina, bæði tilveru þeirra fyrirtækja sem starfa hérna og samstarfið við Grindavíkurbæ og starfsmenn hans hefur verið mjög gott.“

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Fjórhjólaferð

Samvinna ofar samkeppni
Sigurður segir að það hafi tekið aðila í ferðaþjónustunni tíma að átta sig á því að samvinna væri ofar samkeppni. „Við gerðum okkur fljótlega grein fyrir því að við viljum vera góð í því sem við gerum og höfum þá unnið með öðrum aðilum til þess að styrkja bæði þá og okkur. Þegar ferðamaður leitar til okkar þá spyrjum við alltaf í leiðinni hvort hann vilji annars konar upplifun og þjónustu í leiðinni. Þannig aukum við líka verðmætin sem verða skilin eftir í bæjarfélaginu. Þetta virkar fyrir alla.“ Hann segir að þau skipuleggi „allan pakkann“ ef fólk vill; jafnvel eitthvað út á land líka. „Þetta byrjar oft í einum tölvupósti og endar í ferð um allt landið,“ segir Sigurður.

Eldvörp

Meira til en Gullni hringurinn
Reykjanesið er perla sem Sigurður segir fólk stundum lengi að kveikja á. „Það er til meira en Gullni hringurinn og hægt er að njóta þess svo vel akandi, á fjórhjólum, reiðhjólum eða gangandi. Við bjóðum upp á staði sem standast fyllilega samanburð við flottustu staði á landinu, eins og Trölladyngju, Eldvötn, Gunnuhver og fleira. Þetta er þvílík upplifun og margir vita ekki af þessu. Við undrum okkur oft á því hvers vegna Reyknesingar keyra út á land til að njóta fallegrar náttúru þegar í raun nægir að reima á sig skóna og halda af stað.“

Gunnuhver

Bæjarfélögin ryðji jarðveginn
Sigurður segir ferðamálasamtökin hugsa í lausnum og til lengri tíma. „Við viljum ekki bara benda á stíg sem búið er að leggja heldur einnig einhvern sem getur farið með og talað um það sem hægt er að sjá frá stígnum.“ Í sumar eru þau t.a.m. að vinna að verkefni sem eru hjólreiðaferðir frá Bláa lóninu. „Við erum stærsta fyrirtækið í svona afþreyingu á Reykjanesi. Stofnun svona fyrirtækis krefst mikillar þolinmæði og við höfum unnið með bænum með innviði ferðaþjónustunnar á svæðinu.“ Sigurður bætir við að eftir stofnun Jarðminjagarðsins sé verið að vinna að leiðarkerfi um garðinn og vonir séu bundnar við aðkomu bæjarfélaganna að honum. „Það eru engin takmörk fyrir því sem hægt er að gera ef við höfum þolinmæði og samstöðu. Bæjarfélögin verða að ryðja jarðveginn fyrir fyrirtækin.“

Reykjanestá

Sýna ferðamönnum hvar mannbjörg varð
Þá segir Sigurður að ferðaþjónustan sé búin að þarfagreina Reykjanes og hægt sé að bjóða upp á skipulagða dagskrá í u.þ.b. fjóra daga. „Svo höfum við söguna hérna og t.d. hafa ferðaþjónar tengt starfsemi sína við sögu björgunarsveitarinnar, sögu og sjósókn. 230 manns hefur verið bjargað á Grindavíkursvæðinu frá árinu 1930. Mannbjörg varð þegar báturinn Hrafn III GK fórst 1988 og hann er að hluta til undir brimvarnargarðinum við Hópsnes. Við stoppum oft við og segjum fólki söguna af því björgunarafreki,“ segir Sigurður.  

Hópsnes

Æ erfiðara að selja ósnortna náttúru
Spurður um framtíðarsýn ferðamála segir Sigurður að aukna samvinnu þurfi á milli ferðaþjónustunnar, Hitaveitunnar og jafnvel Vegargerðarinnar. „Við þurfum að spila meira saman til að ferðamenn geti farið þar sem við á í sýnileika við hitaveituna en á öðrum stöðum þurfi þeir að komast framhjá. Þar þarf að taka til hendinni.“ Alltaf verði erfiðara að selja ferðamönnum ósnortna náttúru þegar verið sé að breyta vinsælum leiðum í iðnaðarsvæði. „Þá er verið að taka upplifunina af því sem verið er að bjóða. Grindavík er aðeins fimm mínútna fjarlægð frá Bláa lóninu. Og er það mesti styrkur ferðaþjónustunnar,“ segir Sigurður að endingu.  

VF/Olga Björt