Mannlíf

Með ryk í auga í allra síðasta sinn
Úr atriði í sýningunni.
Föstudagur 28. nóvember 2014 kl. 09:27

Með ryk í auga í allra síðasta sinn

Síðustu sýningar Leikfélags Keflavíkur á revíunni Með ryk í auga eru í Frumleikhúsinu um helgina. Með ryk í auga er í leikstjórn Hjálmars Hjálmarssonar en handritshöfundar eru Arnar Ingi Tryggvason, Jón Bjarni Ísaksson, Arnór Sölvason, Gustav Helgi Haraldsson, Ómar Ólafsson, Júlíus Freyr Guðmundsson og svo er stjórn Leikfélags Keflavíkur einnig skrifuð fyrir handritinu. Nánast fullt hefur verið á sýningarnar.

Miðasala er í síma 421-2540 eftir kl.14:00 alla daga og er miðaverð 2000 kr. Einnig opnar miðsalan klukkutíma fyrir sýningu. Sýnt er í Frumleikhúsinu Vesturbraut 17 í Keflavík.

Síðustu sýningarnar eru sem hér segir:
Föstudagur 28. nóv kl. 20:00
Sunnudagur 30. nóv kl. 20:00
 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024