Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Með blik í auga á Ljósanótt
Miðvikudagur 24. ágúst 2011 kl. 09:06

Með blik í auga á Ljósanótt

– Tónlist og tíðarandi áranna 1950-1970 á hátíðartónleikum í Andrews

Venju samkvæmt verður boðið upp á glæsilega hátíðartónleika í tilefni af Ljósanótt í Reykjanesbæ.
Þetta árið hafa þeir hlotið nafnið Með blik í auga, og er tímaferðalag aftur til áranna 1950 til 1970 í tónum, máli og myndum.  Við förum í tímaflakk aftur til áranna þegar Hafnargatan var ómalbikuð og breyttist í stórfljót í rigningum. Þegar kaupmenn versluðu á öllum hornum og Kaupfélagið var stórveldi. Bærinn ilmaði fyrst og fremst af fiski og herinn nýbúinn að koma sér fyrir á Háaleitinu. Hallbjörg Bjarnadóttir,  Ellý Vilhjálms, Haukur Morthens og Raggi Bjarna hljómuðu í óskalagaþáttum sjúklinga og sjómanna.

Það verður einmitt boðið upp á tónlist þessara listamanna auk Hljóma, Villa Vill, Flowers og Trúbrots í Andrews Theater á Ásbrú í Reykjanesbæ, sunnudaginn 4. September kl. 16 og  aftur kl. 20.


Það eru frábærir söngvarar af Suðurnesjum sem stíga á svið, Valdimar Guðmundsson, Fríða Dís Guðmundsdóttir, Bríet Sunna Valdemarsdóttir Jana María Guðmundsdóttir, Guðmundur Hermannsson, Birna Rúnarsdóttir, Sveinn Sveinson og fleiri. Það er 14 manna hljómsveit sem leikur undir.

Arnór B. Vilbergsson stjórnar hljómsveitinni og útsetur tónlistina í upprunalegum anda.
Kristján Jóhannsson skrifar handrit og kynnir viðburðinn.

Miðasala er á midi.is en einnig verður hægt að nálgast miða á heimaslóð í forsölu sem nánar verður auglýst síðar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024