Með blik í auga á Akureyri
Nú er það orðið ljóst að „Blik í auga 4 - Keflavík og kanaútvarpið“ verður sett upp í Menningarhúsinu Hofi laugardaginn 21. mars 2015.
Sami hópur og kom að sýningunni í Andrews verður með en Eyþór Ingi tekur við keflinu af Matta Matt sem ekki á heimangengt en Regína Ósk, Bjarni Ara og Sverrir Bergmann stíga á svið.
Tónlistarstjóri er að sjáfsögðu Arnór Vilbergsson og sögumaður og fararstjóri Kristján Jóhannsson.
Fyrir áhugasama Suðurnesjamenn sem vilja skella sér er miðasala hafin á menningarhus.is.