Með blik í auga
Venju samkvæmt verður boðið upp á glæsilega hátíðartónleika í tilefni af Ljósanótt í Reykjanesbæ.
„Þetta árið hafa þeir hlotið nafnið Með blik í auga, og er tímaferðalag aftur til áranna 1950 til 1970 í tónum, máli og myndum. Við förum í tímaflakk aftur til áranna þegar Hafnargatan var ómalbikuð og breyttist í stórfljót í rigningum. Þegar kaupmenn versluðu á öllum hornum og Kaupfélagið var stórveldi. Bærinn ilmaði fyrst og fremst af fiski og herinn nýbúinn að koma sér fyrir á Háaleitinu. Hallbjörg Bjarnadóttir, Ellý Vilhjálms, Haukur Morthens og Raggi Bjarna hljómuðu í óskalagaþáttum sjúklinga og sjómanna,“ segja þeir Arnór Vilbergsson og Kristján Jóhannsson hjá Tónlistarfélagi Reykjanesbæjar í samtali við Víkurfréttir.
Það verður einmitt boðið upp á tónlist Hallbjargar, Ellýar, Hauks Mortens og Ragga Bjarna, auk Hljóma, Villa Vill, Flowers og Trúbrots í Andrews Theater á Ásbrú í Reykjanesbæ, sunnudaginn 4. september kl. 16 og aftur kl. 20.
„Það eru frábærir söngvarar af Suðurnesjum sem stíga á svið, Valdimar Guðmundsson, Fríða Dís Guðmundsdóttir, Bríet Sunna Valdemarsdóttir Jana María Guðmundsdóttir, Guðmundur Hermannsson, Birna Rúnarsdóttir, Sveinn Sveinson og fleiri. Það er 14 manna hljómsveit sem leikur undir,“ segja þeir félagar. Sýningin í Andrews verður einnig klædd í búning áranna 1950 til 1970 og m.a. mun Gerður G. Bjarklind ljá fréttalestrinum rödd sína.
Arnór B. Vilbergsson stjórnar hljómsveitinni og útsetur tónlistina í upprunalegum anda. Kristján Jóhannsson skrifar handrit og kynnir viðburðinn.
Dagskráin öll er verk Suðurnesjafólks en mikil vinna hefur verið lögð í undirbúning hátíðartónleikanna og þrotlausar æfingar. Aðstandendur Með blik í augum ætla að fylla Andrews tvívegis á sunnudeginum, 4. september, og lofa mikilli upplifun.
Miðasala er á midi.is en einnig verður hægt að nálgast miða á heimaslóð í forsölu sem nánar verður auglýst síðar.