Matur og Fjör á Primo um helgina
 Mikið er um að vera á veitingastaðnum Primo í Reykjanesbæ um helgina, en þar verður meistarakokkurinn Rúnar Marvinsson gestakokkur á föstudag og laugardag. Þessi uppákoma er undir yfirskriftinni „Matur og Fjör“ og er í tengslum við Food and Fun hátíðina sem er á Höfuðborgarsvæðinu um helgina.
Mikið er um að vera á veitingastaðnum Primo í Reykjanesbæ um helgina, en þar verður meistarakokkurinn Rúnar Marvinsson gestakokkur á föstudag og laugardag. Þessi uppákoma er undir yfirskriftinni „Matur og Fjör“ og er í tengslum við Food and Fun hátíðina sem er á Höfuðborgarsvæðinu um helgina.Rúnari til aðstoðar er Bjartmar Guðmundsson og vera þeir með kræsilegan þriggja rétta matseðil. Hann samanstendur af koníaksbættu humarseyði, innbakaðri saltfiskmús með humarhala og loks franskri andarbringu í appelsínusósu. Þá má ekki gleyma óvæntum eftirrétti að hætti kokkanna.
Þess má einnig geta að þeir verða líka með kjötveislu matseðil í boði.
Á laugardagskvöld verður svo sérstakt Primo-partý í boði Viking Lite þar sem haldið verður upp á nýjan opnunartíma um helgar, en héðan í frá verður leyft að hafa opið til kl. 4.30 eins og aðrir staðir í bænum.

 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						


 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				