Mannlíf

Matthew Santos á tónleikum í Hljómahöll
Fimmtudagur 4. október 2018 kl. 14:46

Matthew Santos á tónleikum í Hljómahöll

Stórviðburður verður í Reykjanesbæ þann 19.óktober nk. Bandaríski tónlistarmaðurinn Matthew Santos verður þá með tónleika í Hljómahöll.
 
Matthew Santos er fæddur í Bandaríkjunum árið 1982. Móðir hans er dönsk en faðir hans frá Suður-Ameríku. Hann fór ungur að fikta við tónlist og myndlist, auk annara listforma. 
 
Matthew er að upplagi þjóðlaga- og rokktónlistarmaður, þó svo að honum hafi fyrst skotist fram á sjónarsviðið fyrir alvöru með samstarfi sínu við rapparann góðkunna Lupe Fiasco. Þess má geta að í ofursmelli Lupe Fiasco, Superstar, spilar Matthew stóra rullu með söng sínum sem og í fleiri lögum.
 
Það var snemma ljóst að Matthew er hæfileikabúnt þegar kemur að lagasmíðum, söng og gítarleik. Hann hefur gefið út fjölda laga og platna. Verið tilnefndur til Grammy verðlauna fyrir samstarf sitt með Lupe Fiasco. Spilað hjá þekktum þáttastjórnendum í Bandaríkjunum eins og Letteman ofl., auk þess komið fram á mörgum stórum tónlistarhátíðum t.a.m.  Glastobury, Lollapalooza Chicago, Coachella, Bonnaroo og fleirum. 
 
„Það er mikill heiður að fá Matthew til Íslands og enn meiri heiður að fá hann til að spila í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ þann 19 október nk.,“ segir í tilkynningu frá Hljómahöll.
 
Eingöngu eru 100 miðar í boði á þennan magnaða tónlistarmann.
Public deli
Public deli