Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Matarhandverk 2014
Miðvikudagur 2. júlí 2014 kl. 14:29

Matarhandverk 2014

Áhugasamir frumkvöðlar hvattir til að taka þátt.

Verkefnahópurinn Matarhandverk 2014 hefur ákveðið að gefa áhugasömum frumkvöðlum og
matarhandverksframleiðendum alls staðar af landinu kost á að koma á keppni og kynningu á gómsætu
matarhandverki. Keppnin er opin handverksframleiðendum sem framleiða matvöru í smáum stíl úr eigin
hráefni eða hráefni úr nærumhverfi framleiðslustaðar.

Markmið Matarhandverks er að stuðla að vöruþróun, auka sýnileika og efla gæðaímynd smáframleiðslu
matvæla. Jafnframt bindur verkefnahópurinn vonir við að gera Matarhandverkssýninguna að árlegum
viðburði, en fyrsta keppnin verður haldin á Patreksfirði 2. – 3. október 2014.

Matarhandverk er eftir sænskri fyrirmynd Svenska Mästerskapen i Mathantverk, keppni sem hefur verið
haldin í 17 ár við góðan orðstír. Haustið 2013 tóku 10 íslensk fyrirtæki þátt og unnu til fernra verðlauna.

Á Matarhandverk verður keppni, fræðsluerindi og sölusýning:
· Keppni milli matarhandverksframleiðenda þar sem framleiðendur fá hlutlaust mat á sína vöru og
ábendingar um það sem betur mætti fara.
· Keppnin veitir verðlaun fyrir framúrskarandi vörur sem dæmdar verða eftir bragði, útliti og handverki við
framleiðsluna.
· Keppnin verður kynnt á landsvísu og áhersla lögð á þann landshluta sem stendur að keppninni hverju
sinni.
· Fræðsluerindi verða flutt á sýningunni sem tengjast vöruþróun og matvælaframleiðslu.
· Verslun/sölubás verður á staðnum þar sem framleiðendum matarhandverks gefst kostur á að selja vöru
sína til gesta á sýningunni.
· Sýningin er opin framleiðendum sem framleiða matvöru í smáum stíl úr eigin hráefni eða hráefni úr
nærumhverfi framleiðslustaðar.
· Sýningin er jafnframt opin þjónustuaðilum matvælageirans þar sem þeir geta kynnt sínar tæknilausnir,
vörur og þjónustu.

Vinsamlegast er bent á að svara eftirfarandi spurningum og senda athugasemdir í síðasta lagi 16. júlí á netfangið
[email protected]

1. Hefur þú eða fyrirtæki þitt áhuga á að taka þátt í matvælakeppni fyrir
handverksframleiðendur?
2. Hefur þú áhuga á skráningu á fyrirlestra og fræðslu Matarhandverks 2014?
3. Hefur fyrirtæki þitt áhuga á að vera með vöru til sölu í verslun sýningarinnar?

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við Viktoríu Rán Ólafsdóttur í síma 4510077 eða tölvupósti
[email protected]
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024