Maríulaxinn og háloftin
Gígja Sigríður Guðjónsdóttir, flugfreyja og varabæjarfulltrúi í Reykjanesæ hefur verið á fleygiferð í allt sumar. Hún veiddi sinn fyrsta lax, fór hringinn í kringum landið og einnig í sólina á Spáni.
Hvernig varðir þú fyrsta sumarfríinu án Covid-takmarkana?
„Þetta sumar er búið að vera hreint út sagt æðislegt, fyrir utan veðrið kannski. Ég reyni að stunda eins mikla útivist og get, áhugamálin eru að verða dálítið mörg. Við byrjuðum sumarið á að fara til Marbella, áttum þar æðislega daga í stórum fjölskylduhóp. Krakkarnir voru í fríi í júlí og þá fórum við hringinn í kringum landið í hjólhýsi, gaman að geta skapað minningar fyrir krakkana úti á landi í íslenskri náttúru. Ég fór einnig í mína fyrstu veiði í sumar og ég held að veiðidellan sé strax búin að ná mér, það var æðislega gaman.
Hvað stóð upp úr?
„Veiðiferðin er klárlega með því skemmtilegasta sem ég gerði í sumar. Náði að veiða Maríu-laxinn. Laxinn var 62 cm. og ég sleppti því að bíta veiðiuggann af og fór frekar í sleik við hann og skálaði í kampavíni. Ég útskrifaðist einnig sem yfirflugfreyja hjá Icelandair og það var virkilega gaman að gegna nýrri stöðu í vinnunni núna yfir sumartímann.
Hvað kom skemmtilega á óvart í sumar?
„Við byrjuðum sumarið á að lappa upp á pallinn. Við keyptum okkur matarborð og stóla til að hafa úti og ég sá fyrir mér að við myndum borða úti í hádeginu og kvöldin. Það sem kom mér síðan „skemmtilega“ á óvart er að það hefur aldrei verið sest við borðið, né grillað í sumar.“
Áttu þér uppáhaldsstað til að sækja heim innanlands?
„Ég held að uppáhaldsstaðurinn minn heim að sækja sé heimilið mitt. Við eigum það til að vera svo upptekin og á farandsfæti að það er alltaf best að koma heim.“
Hvað ætlar þú að gera í vetur?
„Ég ætla halda áfram að vera dugleg í útivist og reyna að fara oftar á skíði en í fyrra. Ég er búin að vera á svigskíðum lengi en er ný byrjuð á fjallaskíðum og búin að prófa gönguskíðin. Við ætlum að fara í allavega eina skíðaferð erlendis og svo er bara að vona að við fáum góðan vetur hér á íslandi og nóg af snjó.“
Hvernig finnst þér Ljósanótt?
„Það er alltaf ákveðin sjarmi yfir Ljósanótt finnst mér, þó við virðumst vera í áskrift að rigningu og roki fyrstu helgina í september. Þetta hefur verið stór viðburður hér í bænum í mörg ár, við verðum að passa að halda honum á lofti með jafn miklum ef ekki meiri metnaði en áður. Ég elska að labba í bænum, það eru allir eitthvað svo glaðir á Ljósanótt.“
Hvaða viðburði ætlar þú að sækja á Ljósanótt?
„Það er hefð að labba Hafnargötuna þegar búðirnar eru með afslætti og sjoppa aðeins með hvítvínsglas í hönd. Síðan ætla ég að fara á heimatónleikana á föstudeginum, en mér finnst það búið að vera toppurinn á Ljósanótt síðustu ár. Það er einnig nýr viðburður hér i hverfinu okkar sem heitir „í Holtunum heima“ en það er gaman að sjá metnaðinn í því að halda uppi stemningu þessa helgi. Á laugardeginum er planið að fara með krakkana í bæinn og skoða barnadagskránna og kíkja á sýningar.“
Hver er besta minningin þín frá Ljósanótt?
„Ætli það hafi ekki verið 2011 þegar ég dró vinkonur mínar úr Reykjavík á Ljósanótt í von um að hitta einn sjúklega sætan strák úr Keflavík sem ég var ný byrjuð að tala við sem reynist nú vera maðurinn minn í dag.“
Gígja, Ásgeir Elvar, maður hennar, og börnin, Dagbjört og Vilhjálmur.
Á fjallahjóli upp að gosi og á fjallaskíðum að sumri.