Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Marína Ósk og Mikael Máni gefa út nýja breiðskífu
Miðvikudagur 4. nóvember 2020 kl. 14:02

Marína Ósk og Mikael Máni gefa út nýja breiðskífu

Breiðskífan „Tendra“, sem er jafnframt fyrsta plata samnefndrar hljómsveitar, kemur út á CD og vínyl 6. nóvember 2020 hjá Smekkleysu. Hljómsveitina skipa tvíeykið Mikael Máni og Keflvíkingurinn Marína Ósk.

Hljóðheimurinn á plötunni er ævintýraleg blanda af söngvaskáldastíl og „alternative“ poppi en þar sem þetta er frumburður hljómsveitarinnar leyfa þau sér að vera mjög leitandi og blanda saman ólíklegum stílum, formum og hugmyndum sem leynast í skúmaskotum hugarfylgsna þeirra. Textarnir fjalla um mjög hversdaglega hluti; idolíseringu, lata morgna, söknuð og sjálfsleit – frá allskonar skrítnum sjónarhornum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Nafnið „Tendra“ kemur frá upplifun hljómsveitarmeðlima þegar þau sömdu lögin sín í sameiningu í fyrsta skipti. Sem samstarfsfólk til 6 ára hafa þau unnið náið saman og tengst djúpum böndum en eitt er að vinna saman, annað að semja og skapa. Báðir meðlimir upplifðu líkt og tendrað væri á báli þegar þau byrjuðu að semja tónlist saman og lögin flæddu. T.a.m. þá tóku þau upp og fullunnu í heildina 14 lög fyrir þessa plötu en ákváðu að stytta plötuna niður í 9 lög í „early-bítlaplötu lengd“ til að gefa nýjum hlustendum tækifæri á að kynnast þeim smátt og smátt.

Mikael Máni og Marína Ósk gáfu út eina plötu saman fyrir 3 árum undir nafninu Marína & Mikael en sú tónlist var svo ólík því sem þau eru að gera núna að þeim fannst ekki rétt að nota sama hljómsveitarnafn. Sú plata, Beint heim, er jazz og dægurlagaplata og er aðeins með gítar og söng en hún hlaut tilnefningu sem jazzplata ársins hjá ÍSTÓN 2018. Þetta eru ekki einu tilnefningarnar sem þau hafa fengið en Marína Ósk fékk tvær tilnefningar 2020 í opnum flokki fyrir plötuna sína Athvarf, sem plata ársins og lag ársins og Mikael fékk tilnefningu sem lagahöfundur ársins í jazzflokki fyrir plötuna sína, Bobby.

Hljómsveitarmeðlimirnir tveir spila að mestu leiti inn plötuna sjálf en í 4 lögum njóta þau gestaflutnings frá Kristofer Rodriguez Svönusyni á trommur og slagverk og Heiði Láru Bjarnadóttur á selló. Mikael sá um að spila öll hin hljóðfærin inn á upptökurnar og má þar heyra mjög fjölbreytta hljóðfæraflóru með allskyns hljómborðum, bassa, gíturum, víbrafóni, hryngjammi, slagverki og fl.

Vegna þess að möguleikar á tónleikahaldi eru takmarkaðir, ætlar Tendra að gefa út seríu stuttmyndbanda í stað þess að halda útgáfutónleika. Þar munu þau bjóða landsþekktu tónlistarfólki að koma og flytja eitt lag af plötunni og eina ábreiðu af íslensku lagi með hljómsveitinni. Þau munu þannig gefa út 4 myndbönd sem svipa til örtónleika, og mun fyrsta myndbandið koma út í byrjun febrúar 2021.

Birgir Jón Birgisson sá um upptökur og alla hljóðvinnslu. Brynja Baldursdóttir sá um hönnun og umbrot. Platan var tekin upp í Sundlauginni Mosfellsbæ í maí og júní 2020.