María sigraði Instagramleik VF og Reykjanesbæjar
Fjölbreytt flóra ljósmynda í Ljósanæturleiknum
Þrátt fyrir smá vætu og rok er glæsileg Ljósanótt að baki, en hátíðinni lauk á sunnudag með veglegri flugeldasýningu. Víkurfréttir og Reykjanesbær stóðu fyrir sérstökum ljósmyndaleik þar sem gestir voru hvattir til þess að mynda hátíðina á snjallsímana sína og merkja myndirnar sínar með „hastagginu“ #ljosanott2013. Viðbrögðin létu ekki á sér standa en rúmlega 500 voru merktar með þessum hætti.
María Sigurborg Kaspersma, 24 ára Keflavíkurmær, stóð uppi sem sigurvegari í leiknum að þessu sinni en vonandi er þessi leikur kominn til að vera. María tók sigurmyndina neðst við Hafnargötuna þegar bílalest fornbíla ók þar framhjá. Eins og sjá má er afar þungbúinn himinn í bakgrunni en það þótti dómnefnd táknrænt fyrir Ljósanótt þetta árið. Auk þess er mikið um að vera á myndinni og þótti dómnefnd hún fanga stemningu Ljósanætur 2013. María var hæstánægð þegar blaðamaður hafði samband við hana, hún sagðist aldrei hafa unnið neitt áður og trúði þessu hreinlega ekki. Að launum hlaut María glæsilegan Nokia Lumia 925 snjallsíma að verðmæti 100.000 kr.
Sigurmyndin í ár.
Þegar blöðrunum er sleppt við Myllubakkaskóla ár hvert er Ljósanótt formlega sett. Athöfnin er skemmtileg og sérstaklega glæsilegt myndefni. Björgvin Jónsson náði að fanga þetta augnablik nokkuð vel þegar hann tók þessa mynd sl. fimmtudag. Björgvin hlýtur að launum 20.000 kr. úttekt hjá Nettó Reykjanesbæ.
Myndin sem hafnaði í 3. sæti að þessu sinni var einnig táknræn fyrir Ljósanótt 2013. Þar má sjá hátíðargest standa við hátíðarsvæðið í veðurofsanum sem dundi yfir síðdegis og um kvöldið á laugardag. Myndina tók Ólafur Guðmundsson. Hann fær að launum bíóveislu fyrir fjóra hjá SAM-bíóunum Keflavík.
Margar myndir vöktu athygli dómara, en dómnefndina skipuðu Eyþór Sæmundsson blaðamaður Víkurfrétta, Björk Þorsteinsdóttir menningarráði Reykjanesbæjar og Óli Haukur Mýrdal (OZZO) ljósmyndari. Vinningshafar vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Víkurfrétta í síma 421-0000.