Margt um manninn hjá Geimsteini
Eins og endranær var líf og fjör á uppskeruhátíð útgáfufyrirtækisins Geimsteins í gærkvöldi, en hátíðin hefur verið haldin fyrsta fimmtudaginn í desember svo lengi sem elstu menn muna. Á því var engin breyting þetta árið og tónlistarmenn á vegum útgáfunnar tróðu upp á skemmtistaðnum Ránni í gær fyrir fjölda gesta sem skemmtu sér vel. Ljósmyndari Víkurfrétta smellti af nokkrum myndum af mannlífinu.
VFmyndir/EJS