HSS
HSS

Mannlíf

  • Margt í boði á Safnahelgi á Suðurnesjum 12.-13. mars
  • Margt í boði á Safnahelgi á Suðurnesjum 12.-13. mars
    Valgerður Guðmundsdóttir, menningarfulltrúi Reykjanesbæjar.
Mánudagur 7. mars 2016 kl. 10:00

Margt í boði á Safnahelgi á Suðurnesjum 12.-13. mars

- Markmiðið að kynna Suðurnesin sem skemmtilegt svæði

Safnahelgi á Suðurnesjum verður haldin í áttunda sinn um næstu helgi, 12. til 13. mars. Safnahelgin er samstarfsverkefni allra sveitarfélaganna á Suðurnesjum. Að sögn Valgerðar Guðmundsdóttur, menningarfulltrúa Reykjanesbæjar, er markmiðið með hátíðinni fyrst og fremst að kynna menningu fyrir íbúum svæðisins og ekki síður fyrir fólki á Suðvesturhorninu.

„Markmiðið er að kynna Suðurnesin sem skemmtilegt svæði til að heimsækja. Dagskráin verður afskaplega fjölbreytt og því kjörið fyrir fólk að nýta tækifærið og skoða áhugaverð söfn og sýningar því ókeypis er á söfnin og alla viðburði nema annað sé tekið fram,“ segir hún. Valgerður bendir einnig á að á Suðurnesjum séu fjölmörg kaffihús og veitingastaðir sem kjörið sé að snæða á.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Aðsóknin að safnahelginni hefur aukist undanfarin ár og í fyrra komu um 4000 gestir. Á dagskránni kennir ýmissa grasa. Í Sandgerði verða þrjár sýningar í Þekkingarsetri Suðurnesja. „Þar verður sögusýning um rannsóknarskipið Pourquoi-Pas? sem lenti í óveðri út af Garðskaga, hraktist upp í Borgarfjörð og fórst á Hnokka út af Álftanesi á Mýri og létust 40 manns, allir nema einn áhafnarmeðlimur,“ segir Valgerður. Í Þekkingarsetrinu er einnig sýningin Þangálfar, auk lifandi sjávardýra. Valgerður segir því mjög skemmtilegt fyrir börn að kíkja í Þekkingarsetrið. Í Sandgerði verða einnig ýmsar listsýningar og í bókasafninu verður sýning á gömlum dúkkuvögnum.

Í Garðinum er byggðasafnið opið og einnig verður sýning í Sjólist, húsi Unu Guðmundsdóttur. Á sýningunni verða meðal annars myndir frá jarðarför Unu. „Í Garði verður einnig ævintýragarður hjá Helga Guðmundssyni sem hefur búið til skemmtilegar styttur í garðinum hjá sér,“ segir Valgerður.

Í Vogum verður opnuð sögusýning í Norðurkoti, sem er nýuppgert hús. „Þar verður sýning um 144 ára skólasögu. Skólinn í Norðurkoti var með eldri skólum á Suðurnesjum. Minjafélagið hefur gert húsið upp á fallegan hátt,“ segir Valgerður. Í Vogum verða einnig tónleikar og ljósmyndasýning í félagsmiðstöðinni og  mikið fjör um kvöldið í sundlauginni.

Í Grindavík er ekki aðeins Safnahelgi, heldur einnig Menningarvika sem hefst um Safnahelgina og stendur út vikuna á eftir. „Þar eru nokkrar sýningar í Kvikunni meðal annars Guðbergsstofa, jarðorkusýning og saltfisksýning og minjasýning hjá Þorbirni í gömlu fiskverkunarhúsi. Auk þess verða fjölmargar listsýningar og tónleikar á ýmsum stöðum.“ Þá verður útvarpsmaðurinn ástsæli, Guðni Már Henningsson, með myndlistarsýningu í Salthúsinu og sönghópurinn Blítt og létt heldur tónleika. Í Grindavíkurkirkju mun svo barnakór Grindavíkur frá 1978 til 1981 koma saman og syngja.

Sýningin Íbúð Kanans verður áfram á Ásbrú og segir Valgerður hana sérstaklega áhugaverða fyrir fólk sem ekki hefur búið á Suðurnesjum. Þá verður sýning á leikföngum Helgu Ingólfsdóttur; brúðum og Star Wars fígúrum. Í Duus Safnahúsum eru sex sýningar í gangi og verða ýmsir viðburðir tengdir þeim báða sýningardagana. Í Gestastofu Reykjanes jarðvangs verða ný gönguleiðarkort kynnt en þau er nú verið að teikna. Þá verður í Bátasafninu  harmonikkuball og einnig eru í Duus Safnahúsum tvær sýningar tengdar hernum. „Önnur heitir Herinn sem kom og fór og hin er ljósmyndasýning með myndum sem voru teknar af Braga Þór Jósefssyni um það leyti sem herinn fór. Undirtitillinn er Ára yfirgefinna staða og fjallar um hvernig fólk finnur fyrir nærveru hermannanna þó svo að þeir séu farnir. Í Rokksafninu heldur sýningin um Pál Óskar áfram, á bókasafni Reykjanesbæjar  verður sýning á teiknimyndasögum, Skessan verður opin, auk Slökkviliðssafnsins svo fátt eitt sé nefnt.“ Valgerður ítrekar að allir séu velkomnir á Safnahelgina og hvetur fólk til að koma og njóta þess sem í boði er. „Að lokum má nefna að mörg gallerí og listhús eru líka opin og því um að gera að kíkja á safnahelgi.is og kynna sér dagskrána.“