Margmenni á þrettándagleði - sjáið allar myndirnar!
Þátttaka í hátíðarhöldum á þrettándanum í Reykjanesbæ hefur sjaldan verið eins mikil og í ár. Mannfjöldi safnaðist saman við Hafnargötuna í Keflavík til að kveðja jólin en auk bæjarbúa voru þarna álfar, tröll og púkar.
Áður en formleg dagskrá hófst við Hafnargötu var bæjarbúum boðið að taka þátt í luktarsmiðju í Myllubakkaskóla og þaðan fór einnig fjölmenn skrúðganga undir forystu álfadrottningar og álfakonungs. Herlegheitunum lauk svo með fallegri flugeldasýningu sem þó var í styttri kantinum þetta árið.
Meðfylgjandi myndir tók ljósmyndari Víkurfrétta, Hilmar Bragi Bárðarson.