HSS
HSS

Mannlíf

Margir áhugaverðir viðburðir og sýningar í dag
Sunnudagur 4. september 2011 kl. 13:15

Margir áhugaverðir viðburðir og sýningar í dag

Margir mjög áhugaverðir viðburðir eru á dagskrá Ljósanætur í dag en þátttaka hefur verið með eindæmum góð.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Þar má nefna námskeið í töfrabrögðum kl. 13:00 í Íþróttaakademíunni í umsjón Einars Mikaels töframanns sem fram kom á stóra sviðinu í gærdag. Þá verða Gsopelkrakkar með útgáfu- og fjölskyldutónleika í Keflavíkurkirkju kl. 14:00 og frumsamin ljóð ljóðahóps Gjábakka flutt á Kaffi Duus kl. 15:00. Hápunktur dagsins verður vafalítið Hátíðartónleikar Ljósanætur, Með blik í auga - Tónlist og tíðarandi áranna 1950 - 1970 í flutningi frábærra söngvara af Suðurnesjum. Tónleikarnir hefjast kl. 16:00 og 20:00 í Andrew's Theater á Ásbrú.

Þá eru sýningarstaðir flestir opnir um allan bæ og um að gera að reyna að klára að skoða það sem ekki hefur tekist að komast yfir í pakkaðri dagskrá helgarinnar. Meðal sýninga sem eru kannski ekki í alfaraleið má nefna listsýningunni þriggja myndlistarmanna, þeirra Fríðu Rögnvaldsdóttur, Einars Guðbergs og Elínrósar Eyjólfsdóttur en þau eru með opnar vinnustofur í Hvalvík 2 í Reykjanesbæ.

VF-mynd: Fríða Rögnvalds á vinnustofu sinni í Hvalvík sem er skammt frá smábátahöfninni í Reykjanesbæ.