Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Maraþontónleikar og kaffisala í Njarðvíkurskóla
Sunnudagur 28. september 2008 kl. 14:54

Maraþontónleikar og kaffisala í Njarðvíkurskóla



Nú eftir hádegið hófust maraþontónleikar Lúðrasveitar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar á sal Njarðvíkurskóla og munu þeir standa yfir til kl. 19 í kvöld. Tónleikarnir eru vegna væntanlegrar tónleikaferðar sveitarinnar til Orlando í Florida. Kaffisala verður á tónleikunum milli kl.15 og 17.

Maraþontónleikarnir hafa tvenns konar tilgang; annars vegar eru þeir mikilvæg æfing fyrir lúðrasveitina og hins vegar liður í fjáröflun.

Þetta er þriðja tónleikaferð lúðrasveitarinnar til útlanda, en fyrirrennarar hennar, LTK og LTN fóru í all margar tónleikaferðir út fyrir landsteinana, meðan þær störfuðu, allt til ársins 1999.

Í þessari ferð mun LTR spila í Disney World og fyrir leik í NBA-deildinni auk fjölda annarra tónleika og viðburða.

Það er því upplagt fyrir Suðurnesjamenn og aðra áhugasama, að gera sér dagamun og koma á flotta lúðrasveitartónleika í Njarðvíkurskóla í dag, gæða sér á ilmandi kaffi og nýbökuðu meðlæti og leggja um leið sitt af mörkum til málefnisins.


VFmynd/elg: Frá tónleikunum sem hófust nú eftir hádegið.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024