Bygg
Bygg

Mannlíf

Málverkauppboð til styrktar MND félagi Íslands
Mánudagur 30. janúar 2006 kl. 09:37

Málverkauppboð til styrktar MND félagi Íslands

Málverkauppboð til styrktar MND félagi Íslands verður haldið í Húsi Orkuveitu Reykjavíkur -3 hæð, gengið inn um aðalinngang. Uppboðið fer fram laugardaginn 4. febrúar kl. 14:00 opnar húsið. Uppboðið hefst kl. 15:00. Uppboðshaldari er Gísli Einarsson fréttamaður.

Músík og ljóðalestur fyrir uppboðið. Léttar veitingar í boði Orkuveitunar. Meðal annara flytur Hörður Torfa nokkur lög og Kóngurinn sjálfur Rúnar Júll ef hann hefur smugu.

Þetta er hluti af verkefninu „Ljóð í sjóð”, en það mun koma út myndskreytt ljóðabók, ásamt CD disk, með vorinu.

Listamennirnir sem gefa MND félaginu verk sín eru: Eiríkur Smith, Tolli, Gunnar Dal, Daði Guðbjörnsson, Pétur Gautur, Karólína Lárusdóttir, Helga Ármanns, Helga Unnars, Sigurður Óli, Víðir, Elvar, Hörður, Jón Arnar og fleiri. Við hvetjum alla til að mæta og styrkja gott málefni, segir í tilkynningu frá MND félaginu.

Mynd: Dögun eftir Tolla.
Bílakjarninn
Bílakjarninn