Bygg
Bygg

Mannlíf

Þriðjudagur 11. febrúar 2003 kl. 09:32

Málverkasýning Stefáns Jónssonar hjá Keflavík

Laugardaginn 15.2 klukkan 15.02 stendur Ungmennafélag Íslands fyrir menningarverkefninu ,,á mínútunni” Þá munu fjölmörg ungmenna- og íþróttafélög standa fyrir menningarviðburðum á sínu svæði. Á meðal verkefna sem félögin ætla að standa fyrir eru málverkasýning, örsagnasamkeppni og upplestur, flutningur á Þorraþræl, tónlistarflutningur við sundlaug, skemmtidagskrá með söng og tónlistaratriðum, ljóðalestur í verslunarmiðstöð, rapp og danssýningu og margt fleira skemmtilegt. Framlag Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags, er Málverkasýning, en sett verður upp fyrsta einkasýning fyrrverandi knattspyrnumanns Keflavíkur (ÍBK), Stefáns Jónssonar á vatnslitamyndum í félagsheimili Keflavíkur að Hringbraut 108, Keflavík. Sýningin verður opnuð Laugardaginn 15.02 kl. 15:02 og stendur til kl. 18:00 þann dag. Sunnudaginn 16.02 verður opið frá kl. 14:00-18:00 og dagana 17.-21. febrúar verður opið frá kl. 10:00-12:00 og 13:00-16:00

Starf ungmennafélaga er fjölbreytt og viðamikið. Stærstur hluti starfsemi ungmennafélaga lýtur að íþróttastarfi en mörg starfa einnig að menningarlegu starfi og umhverfismálum og vinna þannig að markmiði UMFÍ; ræktun lýðs og lands.

Mörg ungmennafélög víða um land standa nú fyrir Þorrablótum og tengja þau verkefnið við menningarlega dagskrá þorrablótanna. Sum Ungmennafélög standa einnig fyrir leiksýningum, ljóðkvöldum, spilakvöldum þess háttar viðburðum.

Árið 2001 var starfi UMFÍ skipt niður í þrjú svið; íþróttasvið, menningarsvið og umhverfissvið. Hlutverk menningarsviðs er að efla og auka menningarstarfið í hreyfingunni og er verkefnið ,,á mínútunni” liður í því.

Kristín Gísladóttir formaður stjórnar menningarsviðs UMFÍ er ánægð með viðbrögð ungmennafélaga við þessu verkefni; ,,Það er gaman að sjá hvað mörg félög hafa tilkynnt um þátttöku og verkefnin sem þau ætla að standa fyrir eru mjög fjölbreytt og mörg hver frumleg. Það er margsannað að öflugt félagsstarf í félögum og deildum eykur ánægju þeirra sem í félaginu starfa, hvort sem það er krakkarnir eða foreldrar." Kristín segir að stjórn menningarsviðs hafi gert lítillega úttekt á því menningarlega starfi sem fram fer í ungmennafélögunum og þar hafi komið í ljós að menningarlegt starf í ungmennafélögum sé mun meira en stjórnin hafi átt von á. ,,Til dæmis stóð handknattleiksdeild UMF Selfoss fyrir Kvæðaþingi á Selfossi fyrir áramót og það var frábær stemmning í troðfullu Hóteli."

Í Ungmennafélagi Íslands eru starfandi 22 héraðssambönd og um 280 ungmenna- og íþróttafélög með alls um 66.000 félagsmönnum.
Bílakjarninn
Bílakjarninn