Málaði draumsýn sem reyndist eiga stoð í raunveruleikanum
Myndlistarkonan Þórunn Guðmundsdóttir fékk nýverið í hendurnar nokkuð sérstakt verkefni. Henni var falið að mála mynd eftir draumi. Það kom síðar í ljós að draumsýnin átti sér stað í raunveruleikanum og draumurinn var í raun atburður sem átti sér stað í Drangavík á Ströndum.
Þórunn sagði í samtali við Víkurfréttir að Bragi B. Steingrímsson hafi leitað til hennar og óskað eftir því að hún málaði mynd af atburði sem hafi birst honum í draumi. Draumurinn hafi verið á þann veg að hann hafi verið á ferðalagi á Ströndum þegar honum birtist í draumnum maður og kona við skúta eða helli þar sem var dáið barn. Tveimur árum eftir að Braga birtist þessi sýn í draumi hittir hann á Valgeir Benediktsson, sem rekur handverks- og minjahúsið Kört í Norðurfirði. Bragi ræðir drauminn við Valgeir og kemur þá í ljós að draumurinn á sér stoð í raunveruleikanum. Þarna eiga í hlut Fjalla-Eyvindur og Halla. Halla hafði alið Eyvindi son sem lést en lík hans fannst þegar bústaður þeirra í Drangavík var jafnaður við jörðu eftir að þau hjú höfðu verið tekin höndum. Við réttarhöld yfir þeim Fjalla-Eyvindi og Höllu kom í ljós að drengurinn hafði fengið nafnið Bjarni en aðeins lifað tvo sólarhringa.
Úr varð að myndlistarkonan Þórunn Guðmundsdóttir málaði mynd af þeim Fjalla-Eyvindi og Höllu við hellisskútann þar sem sjá má sveinbarnið reifað fyrir innan. Mynd Þórunnar hefur verið sett á skilti sem fest er á stóran stein framan við Handverks- og minjahúsið Kört í Norðurfirði. Minninngarsteinninn var afhjúpaður nú í júlímánuði. Þórunn sagði að það hafi verið ánægjulegt að fá að taka þátt í þessu verkefni og að koma þessum atburði í mynd.
Á skiltinu með myndinni er ítarlega sagt frá atburðinum á íslensku en einnig eru styttri útgáfur af frásögninni á ensku og þýsku.