Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

  • Mála eldfjöll og veiða hákarla
    Áhugasamir nemendur mála ekta eldfjall.
  • Mála eldfjöll og veiða hákarla
    Leikskólastýrurnar Elín Björk Einarsdóttir og Kristín Helgadóttir.
Laugardagur 14. mars 2015 kl. 06:00

Mála eldfjöll og veiða hákarla

Skapandi og lifandi starf í 30 ára leikskólanum Holti.

Leikskólinn Holt í Reykjanesbæ er 30 ára um þessar mundir og bygging hans hófst árið 1978, þegar félagar í Systrafélagi Innri-Njarðvíkurkirkju, ásamt eiginmönnum sínum og fjölskyldum, byggðu húsið og gerðu það fokhelt. Þá gáfu þau Njarðvíkurbæ það til þess að klára og setja á stofn leikskóla. Hann var svo stofnaður árið 1985. „Þetta er dálítið skemmtileg saga vegna þess að við störfum í anda Reggio Emilia, en þar skipta þrír aðilar máli; umhverfið, kennarinn og barnið. Umhverfið er þriðji kennarinn. Og vegna þess að það þarf heilt þorp til að ala upp barn þá var heilt þorp sem byggði þennan leikskóla því fólkinu fannst vanta leikskóla fyrir börnin á svæðinu sínu,“ segir Kristín Helgadóttir, leikskólastjóri.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Svaka stuð að búa til rafmagn. 

Í umhverfi Holts og í göngufæri eru mói, tjarnir, fjara og útinámssvæði sem börnin nota mikið í leikskólastarfinu. „Þetta er alveg yndislegt og við njótum góðs af því. Útinámssvæðið í Narfakotsseylunni byggðum við ásamt Akurskóla og leikskólanum Akri. Það var gert á svo uppbyggilegan hátt því börnin lögðu grunninn sjálf. Þau komu með hugmyndir um hvað þau myndu vilja hafa þar, í samstarfi við arkitekt og öllu samfélaginu, þ.m.t. foreldrum sem einnig komu að þessari vinnu. Við förum mikið þangað til að uppgötva og læra nýja hluti. Það gleyma börnin sér tímunum saman,“ segir Kristín.  

Þessi var afar stoltur af húsinu sínu. 

Mikill sköpunarkraftur

Starfsfólkið á Holti verður mikið vart við sköpunarkraft barnanna í innra og ytra umhverfi og þegar Víkurfréttir komu í heimsókn voru börn m.a. að mála eldfjall saman og fræðast um það. „Já, við munum eftir því þegar við vorum börn og fórum í móann í búleik, þá gleymdum við öllu öðru og ímyndunaraflið fór á fleygiferð. Það er nákvæmlega það sem gerist hjá börnunum. Þau skoða lífbreytileikann í vatninu. Í dag voru þau að veiða hvali og margir eru hræddir um að hvalir séu í útrýmingarhættu á þessu svæði,“ segir Kristín og brosir. Eins og annars staðar í Reykjanesbæ hefur Holt verið í góðu samstarfi við heimaskóla sinn, Akurskóla og börnin eru dugleg að heimsækja hann. „Einu sinni í viku förum við með hóp þangað í tíma og það er frábær aðlögun að næsta skólstigi; að fá að vera eðlilegur nemandi í umhverfinu einu sinni í viku. Svo vinnum við ýmis verkefni og þemu með Akurskóla og hinum leikskólanum, Akri. 

Upprennandi tæknifræðingur.

Hlutir fá nýtt líf

Stefnan sem skólinn hefur tekið er að vinna mikið með endurvinnanlegan og endurnýtanlegan efnivið. Fá það sem allir leggja frá sér og þurfa ekki að nýta meira eða gefa hlutum nýtt líf. „Þá erum við til dæmis að tala um kubba, pappakassa og umbúðir úr eldhúsinu. Þetta er líka eitthvað sem við verðum að hugleiða í þessum heimi að nýta sem best alla hluti og kaupa ekki allaf nýja. Það er m.a. gert í listasmiðjunni okkar.“ Einnig sé lögð áhersla á að foreldrar komi með það sem nýtist ekki á heimilunum. „Það hefur t.d. verið nýtt í búðinni okkar. Við viljum einnig gjarnan að fá allt samfélagið með okkur í lið og höfum sett af stað efnisveitu sem er staðsett í Ramma-húsinu á Fitjum. Þar geta fyrirtæk á svæðinu komið með eitthvað sem þau nota ekki. Þá geta allir skólar leitað þangað og fengið efnivið sem nýtist þeim vel,“ segir Kristín.  

Önnum kafnir verslunareigendur gáfu sér tíma fyrir smá myndatöku.  

Börnin „féflettu“ pabbann

Dæmi eru um að foreldrar sem koma með börnin sín séu oft mjög áhugasamir um það fram fer í leikskólanum. „Eitt sinn var faðir sem sá búðina þegar það var nýfarið að nota hana. Honum fannst það svo spennandi að hann vippaði sér úr skónum og lék sér með börnunum. Lét þau hafa greiðslukortið sitt. Hann sagði að það hefði verið búið að féfletta hann þegar hann fór út. Hann var búinn að versla svo mikið,“ segir Kristín hlæjandi og bætir við að foreldrum sé frjálst að staldra við og kynnast starfinu. „Við viljum fá foreldra sem allra mest inn í starfið okkar og okkur finnst alltaf gaman að fá foreldra í heimsókn, til skrafs og ráðagerða og segja okkur hvað þeim finnst um allt hér. Það er mikið um það að foreldrar komi í heimsókn og vilji velja sér leikskóla. Þau vilja skoða og heyra hvað það er sem skólinn stendur fyrir og hvernig skólastarfið fer fram.“

Opið hús verður í Holti föstudaginn 13. mars á milli kl.14 og 15 og eru allir velkomnir og kjörið tækifæri fyrir foreldra ungra barna sem hafa áhuga á að skoða starfið að líta við.  Afmæliskaka verður í boði. Einnig stendur yfir myndlistarsýning barna á Holti í versluninni Hjá Fjólu þar sem sýndir eru munir úr endurnýtanlegum efnivið.


Frá útikennslusvæðinu.


Hákarlaveiðimennirnir í fjörunni.

VF/Olga Björt